"Hjólið mitt hefur miklu styttri bremsuvegalengd heldur en bílar".
Þetta er setning sem maður hefur mjög oft heyrt frá bifhjólafólki, en því miður þá er þessi fullyrðing röng.
Margir bifhjólamenn halda því statt og stöðugt fram að bifhjól hafi mun styttri bremsuvegalengd en bifreiðar af þeim sökum að: bifhjólið er léttara, bifhjól hafa mun betri bremsur en bifreiðar, loftmótstaða sé meiri hlutfallslega en á bifreiðum osfrv.
Það má vel vera að allt þetta sé rétt, en bremsuvegalgndir bifhjóla eru ekki alveg jafn stuttar og margir virðast halda.
Það hafa verið gerðar nokkrar prófanir á bremsuvegalengd bifhjóla, og er ein prófun sem var gerð á vegum Motorcycle Safety Foundation í Bandaríkjunum nokkuð góð, þessi prófun var gerð til að meta bremsueiginleika bifhjóla með ABS bremsur og bifhjól með samtengdar fram og afturbremsur.
Í þessari prófun má sjá bremsuvegalengd nokkura hjóla, s.s. Yamaha FJR1300, Honda VFR800 og BMW 1150R, öll þessi hjól voru prófuð með og án ABS og með og án CBS.
Hér að neðan má sjá smá stikkprufur úr prófunum.
(bæði fram og afturbremsa notuð)
Yamaha FJR1300, hraði 48,3 km. án ABS og CBS. Bremsuvegalegd = 10,40m.
Honda VFR800, hraði 48,3 km. án ABS og CBS. Bremsuvegalegd = 11,18m.
BMW 1150R, hraði 48,3 km. án ABS og CBS. Bremsuvegalegd = 10,78m.
Yamaha FJR1300, hraði 128,8 km. án ABS og CBS. Bremsuvegalegd = 67,46m.
Honda VFR800, hraði 128,8 km. án ABS og CBS. Bremsuvegalegd = 71,84m.
BMW 1150R, hraði 128,8 km. án ABS og CBS. Bremsuvegalegd = 71,81m.
Ok, þarna sjáum við hve langan kafla hjól þarf til að stöðva, en hvað þurfa bílar langan kafla til að stöðva á svipuðum hraða?
Skoðum aðeins prófanir sem hafa verið gerðar á nokkrum þekktum bíltegundum.
Lexus LX400, hraði 110km, Bremsuvegalengd = 66,30m
Porsche Boxter, hraði 160km. Bremsuvegalengd = 88,20m
Fiat Multipla (já ógeðið frá Fiat), hraði 136km. Bremsuvegalengd = 80,20m
BMW 320D, hraði 100km. Bremsuvegalegnd = 36,70m.
Hyundai Galloper (jeppi), hraði 100km. Bremsuvegalengd = 46,50m.
Honda Civic Hybrid, hraði 104km. Bremsuvegalengd = 40,50m.
Þetta sýnir okkur í raun að bremsuvegalengd bifhjóla er mjög svipuð og bremsuvegalegnd bifreiða, jafnvel lengri í mörgum tilfellum.
Semsagt, ekki treysta um of á bremsurnar...
Getið skoðað prófunina á hjólunum hér:
http://www.msf-usa.org/i...onofStoppingDistance.pdfSupport 182144118