Toti wrote:Flott græja hjá þeim og skemmtilegt að menn séu að prufa sig svona áfram með eitthvað nýtt í mótorhjólunum.
En nú verð ég að spyrja (hugsanlega eins og fífl) því sá spyr sem ekki veit ... Hverju ætti þetta að breyta með 0-100 og hvaða 60 fet ertu að tala um?
Ég hefði haldið að ef þetta væri eitthvað breakthrough í hraða eða tíma þá væru allir í MotoGP og WSBK með 2W-Drive...?
60fet í kvartmílu, sem er key í hversu góðan tíma þú færð. léleg 60fet = lélegur tími. þetta hefur eflaust sína kosti og galla, og reglugerðir gæti til dæmis komið í veg fyrir svona í moto gp, en stundum eru líka góðar tæknir fjarverandi sökum kostnaðar, áreiðanleika eða einhverra kjánalegra ákvarðanna, samanber sjálfstæð fjöðrun að aftan á RWD bílum. tæknin hefur verið til í marga áratugi, og ástæða þess að hún var ekki sett í mikið af bílum eins og t.d. camaro snemma í 80s tímanum, var bara af því að frammleiðandanum fanst kostirnir ekki vera veigameiri en gallarnir. í dag tæplega 30 árum seinna telst það bara undarlegt ef að frammleiðandi hefur ekki sjálfstæða að aftan þó svo að kostirnir og gallarnir hafi lítið breyst.
annars er bæði þú og hönnuðurinn af þessu kerfi, báðir greinilega svolítið hissa á afhverju motoGP fólkið hefur ekki stokkið á þetta... hugsanlega sökum kostnaðar eða reglugerða. sérstaklega þar sem þetta system virkar á þrýsting, þannig að þegar afturhjólið er að snúast hraðar en dekkið að framan. t.d. við mikla hröðun og í beygjum, þá virkar framdrifið, en svo þegar lítill munur er á framm og aftur hjólunum, þá er næstum allt aflið sett í afturdekkið.
Hér er grein um þetta sem er áhugaverður lestur.R6R1 nú þekki ég bara ekki alveg þennan kvartmíluhjóla heim jafn vel og þegar það kemur að bílum, þannig að ef ég fer með rangt mál þá er það bara sökum fáfræð. En ég hélt nú akkurat að það væri mikilvægt að vera ekki of mikið á afturdekkinu í kvartmílu, og ástæða þess að fólk sé að lengja gafflanna og lækka hjólin, væri til þess að koma í veg fyrir wheelie. Að sama bragði er spól óæskilegt rétt eins og með bíla, þannig með drifi á 2x ásum þá tæplega tvöfaldast snertiflöturinn sem hjólið getur nýtt sér og annar ásin óhæfur um að lifta frammdekkinu, þannig að ég mundi halda á progressive 2wd system eins og þetta væri einstaklega gott í kvartmílu, nema þá kanski að þetta kerfi getur ekki ráðið við meira en 15% afl að framan sem er náttúrulega ekkert svo mikið power.