Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

verð á hjólum
wolfman Offline
#1 Posted : 25. desember 2010 10:56:06(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 9.4.2008(UTC)
Posts: 254

jæja gjörið svo vel .... ThumbsUp

og gleðileg jól öllsömul
Sponsor
Xodus ehf
GULAG Offline
#2 Posted : 25. desember 2010 12:11:52(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.294
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
jahá.. af hverju ekki að smella svona þræði inn.. og ég vil biðja menn og konur um að leyfa söluþráðum hérna að vera ...

persónulega finnst mér bara að markaðurinn á að fá að ráða verði á hjólum, að sjálfsögðu hækka verð á notuðum hjólum í samræmi við verð á nýjum hjólum, þetta er bara spurning um framboð og eftirspurn,

ég hef séð gamla 750F súkku auglýsta á minnir mig 600þ kall, sem er að mínu áliti rugl verð þegar maður hefur séð Hayabusur auglýstar á lítið meira,

t.d. var verið að auglýsa 2008 Búsu hérna á 1,9 millz, sem er að mínu áliti gjafverð, og í raun alltof lágt verð, ég veit ekki hvað ný Búsa kostar í dag, en ég myndi giska á eitthvað yfir 3 millur,,

Support 182144118
bjaddni Offline
#3 Posted : 25. desember 2010 14:57:23(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 11.6.2010(UTC)
Posts: 56
Location: KOP

GULAG wrote:
jahá.. af hverju ekki að smella svona þræði inn.. og ég vil biðja menn og konur um að leyfa söluþráðum hérna að vera ...

persónulega finnst mér bara að markaðurinn á að fá að ráða verði á hjólum, að sjálfsögðu hækka verð á notuðum hjólum í samræmi við verð á nýjum hjólum, þetta er bara spurning um framboð og eftirspurn,

ég hef séð gamla 750F súkku auglýsta á minnir mig 600þ kall, sem er að mínu áliti rugl verð þegar maður hefur séð Hayabusur auglýstar á lítið meira,

t.d. var verið að auglýsa 2008 Búsu hérna á 1,9 millz, sem er að mínu áliti gjafverð, og í raun alltof lágt verð, ég veit ekki hvað ný Búsa kostar í dag, en ég myndi giska á eitthvað yfir 3 millur,,



amerísk busa dag kostar 13699$ og ef að gert er ráð fyrir 1000$ flutningskostnað úti þá er hún komin heim á rúmlega 2.7 millur miðað við að gengið sé 115

en trendið hér var náttúrulega aldrei að kaupa sér umboðshjól þegar þau voru flutt inn, t.d. þurfti ég ekki nema mínútu til að finna 09 hjól ekið 2.xxx mílur á 9500 or best offer. sem mundi gera það heim komið á sirka 1.970. og ath gengið er mjög hátt en í dag.

persónulega finst mér að fólk eigi ekki að hækka verð sín upp miðað við hvað ný hjól kost, nema þá bara eithvað smá, þar sem að það gefur auga leið að sala nýrra hjóla er svo til engin, þá er frekar heimskulegt að vera að vonast eftir að geta í raun aukið verðið á notuðum hjólum í samræmi við það þar sem að ég mundi halda að hjólin seljist bara ekki eins og þessi nýju hjól.

það var t.d. fyndið að þegar ég var að leita að hjóli þá sást strax hvaða hjól höfðu verið annaðhvort á íslenskum lánum, borguð upp fyrir hrun, eða bara hreinlega borguð út, því að fólk var að vilja svona á milli 7XX-8XX fyrir hjólin hjá sér sem að að voru lánlaus, en hjólin með lánum voru án undantekninga með miða hljómandi uppá 1.1xxþ-1.2xxþ
wolfman Offline
#4 Posted : 25. desember 2010 15:27:16(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 9.4.2008(UTC)
Posts: 254

fólk má setja allann andskotann á hjólin sín svo er það undir hverjum og einum hvort þeir vilja kaupa á því verði... ef fólk er að setja stjarnfræðilega há verð á hjólin þá verður það bara til að fleiri sniðganga það.

Svo er það annað að verðlag á öllu hér á landi er algjörlega út úr kú hvort sem er bílar og tæki eða td fasteignir ! En það er markaðurinn og eftirspurnin sem sér til að hlutirnir æxlast svona sem er brandari ThumbsUp
GULAG Offline
#5 Posted : 25. desember 2010 15:34:00(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.294
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
ég veit allavega ef ég ætti að velja milli 09 Búsu af ebay, eða 08 búsu í vesturbænum á svipuð verði myndi ég ekki hugsa mig 2svar um, ég færi í vesturbæinn..

ég hef séð hjól af ebay og víðar sem hafa verið keypt hingað af myndum, og ég verð að segja að fyrir næstum 2 millur myndi ég ekki þora því..
Support 182144118
runarpet Offline
#6 Posted : 25. desember 2010 15:53:36(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Verðlagnin á mótorhjólum á Íslandi er bara rugl og það er að mínu mati ekki hægt að bera saman við verð á nýjum hjólum

t.d. var 2009 ZX-6 enn til í Nítró núna í haust á 1600.þús sem er bara nokkuð svipað verð og 600cc hjól kostuðu 2007 (svipað sagði ég). Svo er auðvita hægt að fara í Suzuki umboðið og þar er ónotuð 2008 Súkka á 1900-2000. þús og það kaupir engin það hjól, því finnst mér til lítils að bera saman einhver draumaverð um nýinnflutt hjól sem engin kaupir og notðu hjól, er bara rugl í mínum huga.

Ég mundi samt alveg skoða að kaupa 2009-2010 hjól á 2-2,4 milljónir í dag, ef ég væri í hjólahugleiðingum.

ég er líka alveg sammála þessu hjá þér Guli, frekar færi ég í vesturbæinn en að taka áhættuna af ebay, annars eru líka til miklu betri staðir að versla sér hjól en ebay ;)

Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
bjaddni Offline
#7 Posted : 25. desember 2010 16:15:27(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 11.6.2010(UTC)
Posts: 56
Location: KOP

gulag, eg var nu eiginlega bara rett ad benda a hvad ny busa kostar svona fyrst u varst ad giska a 3.3mills hehe. en að sjálfsögðu tæki maður frekar hjól sem maður getur skoðað, og tala nú ekki um að geta fengið strax í hendurnar.

ég held að á endanum koma mjög fá nýleg hjól til íslands fyrr en að annaðhvort gengið miðað við erlenda gjaldmiðla lækki, eða laun hækki svo um muni.

runarpet, svona fyrst þú varst að minnast á það. þá er þetta 08 zx6-r hjól komið í 1.410þ hjá nítro, sem ég verð nú að segja að sé gjöf en ekki gjald og meira að segja 09 hjól á 1.7mills
pgxsr Offline
#8 Posted : 25. desember 2010 16:33:42(UTC)

Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 31.1.2008(UTC)
Posts: 93
Location: Reykjavík

Ef maður ætti að miða verð á notuðum hjólum við verð á nýjum hjólum í dag þá myndi 2008 1000 Gsxr keyptur nýr úr umboði vor 2008 á 1.870.000kr.
seljast á tæplega 2.100.000kr miðað við 15% afföll á ári frá verðinu á 2009 súkkunni í umboðinu.
Það bara meikar engan sens.
,,ef þú hefur ekkert gáfulegt til málanna að leggja, skaltu bara þegja"
Startarinn Offline
#9 Posted : 26. desember 2010 15:00:01(UTC)

Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 31.8.2009(UTC)
Posts: 92
Location: Keflavík

Auðvitað fer þetta allt eftir framboði og eftirspurn, en líka hvað seljandinn sættir sig við (framboð), það eru öll bíla og hjóla verð á upppleið finnst mér(allavega miðað við hvað sett er á tækin í dag).
Meðan menn eru tilbúnir að selja á sömu verðum og giltu fyrir jafngömul hjól 2007 þá hækkar verðið vitanlega ekkert.

Ég veit að hjólið mitt er topphjól, og þessvegna myndi ég ekki selja það í dag undir því sem ég keypti það á á sínum tíma.
Ég á hjólið skuldlaust.
Hvort einhver tilbúinn að borga það verð er svo annað mál, en hjólið er ekki til sölu fyrir minna
Ég held að það séu ekki mörg önnur 2007 hjól á landinu ekin 20 þús sem státa af einum ÖKUMANNI alla tíð, það hefur engin setið í ökumannsætinu svo mikið sem einn meter nema ég.
Guð gefi mér elliglöp til að gleyma þeim sem ég þoldi ekki hvort sem er,
Þá gæfu að rekast á þá sem mér líkaði við,
Og sjón til að þekkja muninn


A.K.A. Addi_Sig
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook