Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

Vantar hjálp með Honda CBR 600 '88
KristjánJóhann Offline
#1 Posted : 13. september 2010 23:40:46(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 31.7.2008(UTC)
Posts: 5
Location: HFJ

Sælir kæru spjallfélagar.

Ég var að fjárfesta í Hondu CBR 600 Hurricane '88. Finnst lausagangurinn og vinnslan í því vera asnaleg, það gengur lausagang frekar hratt og rokkar soldið upp og niður og vinnslan virðist vera ójöfn og höktandi. Hvern á maður að tala við til að láta fara yfir hjólið og stilla það og skoða það, einhver hérna sem kannski bíður sig fram í það fyrir lítið? Ekki hika við að senda skilaboð ;)

Svo annað, í lausagangi heyrist leiðinlegt skrölt frá pústinu, þó aðalega þegar það er kalt, og ég tek eftir þessu stundum á keyrslu líka. Fyrrverandi eigandi sagði við mig að það væri einhverskonar loki í pústinu sem skrölti í og að það væri ekkert mál að láta sjóða í þetta og laga. Er hann að bulla í mér eða er þetta einhver þekktur galli eða vesen í þessum hjólum? Gætuð kannski líka bætt inn hvar er best að láta tjékka á þessari bilun.

Virðingarfyllst,

Kristján
Sponsor
Xodus ehf
Nosferatu Offline
#2 Posted : 14. september 2010 13:20:14(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.1.2007(UTC)
Posts: 202
Location: Eitt spurningarmerki?

Líklega er hjólið að sjúga falskt loft og gúmmí við soggreinar og loftsíubox séu léleg, svo eru verulegar líkur á því að það þurfi að hreinsa blöndungana. Það er líklega eitthvað ryðgað og laust í hljóðkútnum og er mögulegt að saga hann í sundur sjóða stykkið fast og sjóða saman.
BMW S1000RR
HagBardino Offline
#3 Posted : 14. september 2010 22:56:22(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 3.11.2009(UTC)
Posts: 13
Location: Breiholt

If you have can do just a tiny bit yourself, you can find loads of help with cbr on www.cbrforum.com, save yourself lot of money (not spamming just helping).
Its only the american models that are named Hurricane ;)

cbr 1000f 87´
KristjánJóhann Offline
#4 Posted : 15. september 2010 00:40:23(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 31.7.2008(UTC)
Posts: 5
Location: HFJ

Takk fyrir þetta. Getur passað að það séu fjórir tveggja hólfa blöndungar á hjólinu?

Og cbrforum, ég skráði mig þar um daginn, hef bara ekki haft tíma til að skoða það eitthvað, fer í það bráðlega, og takk aftur.
Nosferatu Offline
#5 Posted : 15. september 2010 10:06:06(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.1.2007(UTC)
Posts: 202
Location: Eitt spurningarmerki?

KristjánJóhann wrote:
Takk fyrir þetta. Getur passað að það séu fjórir tveggja hólfa blöndungar á hjólinu?

Og cbrforum, ég skráði mig þar um daginn, hef bara ekki haft tíma til að skoða það eitthvað, fer í það bráðlega, og takk aftur.


Blöndungar á hjólum eru allir einshólfa og í langflestum tilfellum eru það vaccuum blöndungar. Það er einn blöndungur fyrir hvern strokk og eru þeir allir samhliða og samtengdir í hjólum með línuvélar.
BMW S1000RR
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook