Hæ,
Ég lenti í óhappi á nýliðaæfingu RR og setti hjólið á hliðina. Þetta fór þó ekki eins illa og hefði getað og er hliðarplastið vinstra megin rispað en þó óbrotið. Sömuleiðis sést smá á framhlífinni og það þarf að sprauta í rauninni þessa tvo hluti.
Búinn að gera við gírskipti-stöngina sem brotnaði.
Mig langar að spyrja ykkur sem þekkið til hvaða verkstæðis ætti ég að leita til? Þið getið séð mynd af hjólinu eftir óhappið:

Viðgerðin er í sjálfu sér ekki flókin en flóknasti parturinn er að finna rétta lit, liturinn er
orginal frá Kawasaki og heitir 17H "pearl wildfire orange" og er einskonar perlulitur með glimmer sem sést sérstaklega vel þegar sólin skín.
Hvaða verkstæði mælið þið með fyrir viðgerðina?
kveðja,
Krystian