Sælar allar
Sunnudaginn 23.maí verður haldinn Nýliðadagur Road Race AÍH uppi á RallyCross braut. Við viljum endilega fá að sjá einhverjar stelpur máta brautina og athuga hvort þær fíli það ekki.
Planið er að hafa sérstök kvenna-run inni á brautinni...svo við Prímadonnurnar getum haft þetta eins og við viljum
Það eru öll götuhjól velkomin að prófa brautina, hvort sem það er hippi, racer, supermoto eða eitthvað annað
Í framhaldinu, þegar við höfum allar fengið næga útrás uppi á braut, langar okkur svo að hópa okkur saman og taka skvísurúnt...
Hvernig er stemningin fyrir því?
Mér skilst að hittingurinn föstudaginn 7.maí hafi lukkast vel...er ekki tilvalið að halda okkur volgum og hafa annan hitting ef veður leyfir?