Það er ekki auðvelt að segja til um svona, kertin þykja mér MJÖG ólíkleg. Ég er t.d. með 2007 Hayabusu sem ég er búinn að keyra 18.000 km og hef aldrei litið á kertin, en hægji gangurinn er orðinn soldið slappur þegar hjólið er kalt, svo það er fyllilega kominn tími á skiptin.
Mér þykir miðað við lýsingarnar að þú ættir að byrja á því sem Gulag segir, ef það hefur verið eitthvað vesen með TPS skynkarana þá myndi ég byrja þar.
Á svona nýju hjóli þarf meðferðin og vetrargeymslan að hafa verið alveg sérstaklega léleg til orsaka ryð í tanknum. Ef hjólið væri farið að ganga illa útaf ryði, þá er nánast öruggt að innspýtingarhreinsir myndi gera álíka gagn og bón á ónýt dekk, ryð virkar eins og sandpappír ef það kemst þarna inn.
En hvernig er það með hjólin, er ekki hægt að lesa tölvurnar í þeim?
Ég fór t.d. með Benzann minn í tölvu á þriðjudaginn útaf því að mér fannst gangurinn ekki góður, það kom í ljós að loftflæðiskynjarinn var ónýtur, en enginn bilanakóði í mælaborðinu. Svo bilanakóðarnir segja ekki allt.
Guð gefi mér elliglöp til að gleyma þeim sem ég þoldi ekki hvort sem er,
Þá gæfu að rekast á þá sem mér líkaði við,
Og sjón til að þekkja muninn
A.K.A. Addi_Sig
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR