Valmynd
Velkominn gestur Leita | Virk efni | Meðlimir | Tengjast | Nýskráning

Hvaða rugl er þetta??? 200 þús.?!? Möguleikar · Skoða
Toti
Póstað: Wednesday, January 27, 2010 5:03:18 PM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 5/16/2008
Póstar: 101
Staðsetning: RVK
Kannast einhver hérna við þetta mál?

http://www.visir.is/article/20100127/FRETTIR01/266524113/-1

8 mánuðir og 200 þús.? Það finnst mér full gróft þó þetta sé engin eignaupptaka. Er þetta eðlilegt miðað við að (amk. í fréttinni lítur þetta út eins og) þeir hafi ekki 100% gögn/sannanir til að styðja þetta?

Nú veit ég ekkert um þetta en væri til í að heyra hversvegna héraðsdómi "þótti sannað að meðalhraði hjólsins hefði verið 186 kílómetra hraði á klukkustund".

Kv. Tóti

2007 Yamaha R1
Styrktaraðili
Póstað: Wednesday, January 27, 2010 5:03:18 PM
Xodus ehf
GULAG
Póstað: Wednesday, January 27, 2010 5:45:18 PM

Tign: Ruddi
Hópar: Ruddar , Stjórnandi

Nýskráður: 11/24/2006
Póstar: 4,172
hérna er umræða um þetta mál

http://ruddar.spjallbord.net/yaf_postst5182_G243240ur-l246gfr230240ingur.aspx

Dómurinn skrifaði:
Oddur Árnason yfirlögregluþjónn kom fyrir dóminn og útskýrði skjöl 10-1 og 10-2 í skjalaskrá lögreglu sem mælingar Guðmundar B. Böðvarssonar voru byggðar á. Kvað hann á myndinni koma fram þann tíma sem tók bæði ökutækin að fara ákveðna vegalengd. Hraðinn á ökutækjunum var samkvæmt því mældur á þeirri vegalengd. Kvað hann annars vegar mælingar fara fram með radar og hins vegar væri meðalhraði mældur út samkvæmt tímasetningu og vegalengd og væru báðar aðferðir viðurkenndar af dómstólum. Útskýrði hann að staðsetning hjólanna hefði verið fundin út með upptökumyndum úr myndavélinni og GPS-tæki, þannig að skekkjumörk gætu verið um sentimetri. Farið hefði verið út í þessa útreikninga til að finna út hraðann á síðara hjólinu en meðalhraði þess hefði verið á 350 metra kafla 144,9 km/klst. Aðspurður um framkvæmdina við að finna út upphafs- og lokapunkt, kvað hann mælistikur hafa verið notaðar til að finna nákvæma staðsetningu út frá myndum úr Eye-witness búnaðinum. Þá kvað hann aðspurður radarinn starfa sjálfstætt, óháðan myndavélinni, hann sendi mælitölur á myndskjáinn, óháð því hvað myndavélin væri að taka upp.

Guðmundur B. Böðvarsson, kt. 000000-0000, Háholti 2b, Laugarvatni, kom fyrir dóminn og kvaðst hafa unnið að útreikningum fyrir lögregluna í þessu máli. Notaðist hann við GPS-landmælingatæki Trimble R8, 5800, og væru skekkjumörkin einn sentimetri í láréttu plani og tveir í lóðréttu plani. Kvað hann punkta út frá vídeómynd frá lögreglu hafa verið mælda út á veginum og þeir síðan settir inn á loftmynd í sama hnitakerfi og mælingarnar og þannig væri vegalengdin fundin út. Kvað hann ýmis kennileiti hafa verið notuð, s.s. runna og vegstikur sem kæmu fram á upptöku lögreglunnar.


Support 182144118
Toti
Póstað: Thursday, January 28, 2010 1:14:29 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 5/16/2008
Póstar: 101
Staðsetning: RVK
Það er ekkert annað!
Afsakaðu þetta. Hinn þráðurinn hefur algerlega farið framhjá mér. Anxious
Mátt eyða þessum bara. Alveg óþarfi að taka þessa umræðu aftur.

Kv. Tóti

2007 Yamaha R1
Orlandi10
Póstað: Thursday, January 28, 2010 11:22:23 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 3/4/2009
Póstar: 160
Staðsetning: Selfoss
Það sem kemur ekki fram í dómnum, er það að hinn aðilinn Haukur Páll er í lögreglunni á Selfossi og var hans mál fegrað til muna, eða settur á 140.6 km/h meðalhraða, 0.4 frá svifti mörkum. Og að hans vitnisburður skuli vera tekin gildur er gjörsamlega fáránlegt, þar sem að hann hefur gríðarlega mikla eiginhagsmuna að gæta. Ef að hann hefði ekki borið vitni gegn mér hefði málið fallið niður og hann rekinn. Sýnir hverslags lögreglu ríki Ísland er !
Lobo
Póstað: Thursday, January 28, 2010 11:23:43 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 5/24/2007
Póstar: 108
Staðsetning: Reykjavík
Þetta er rosa dómur 8 mánuðir er ekkert smá. Ég veit ekki en ef 3 af þessum 8 eru fyrir púnta eru 5 mánuðir rosa þúngur dómur.
Hitt hjólið fékk 3 púnta og 90þ fyrir 140km hraða.
Og ég hélt að það þurfi að láta reyna á það fyrir dómi, því það er bannað með lögum að refsa 2 fyrir sama brotið. Og þetta púntakerfi er ekkert annað en það.
GULAG
Póstað: Thursday, January 28, 2010 11:51:37 AM

Tign: Ruddi
Hópar: Ruddar , Stjórnandi

Nýskráður: 11/24/2006
Póstar: 4,172
þetta er mjög athyglisvert....

Orlandi10 skrifaði:
Það sem kemur ekki fram í dómnum, er það að hinn aðilinn Haukur Páll er í lögreglunni á Selfossi og var hans mál fegrað til muna, eða settur á 140.6 km/h meðalhraða, 0.4 frá svifti mörkum. Og að hans vitnisburður skuli vera tekin gildur er gjörsamlega fáránlegt, þar sem að hann hefur gríðarlega mikla eiginhagsmuna að gæta. Ef að hann hefði ekki borið vitni gegn mér hefði málið fallið niður og hann rekinn. Sýnir hverslags lögreglu ríki Ísland er !


Support 182144118
Sivalski
Póstað: Thursday, January 28, 2010 1:30:44 PM
Tign: Nýliði
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 6/5/2009
Póstar: 2
Staðsetning: Selfoss
Eitthvernvegin þá verð ég að segja þó þetta sé þvílíkt hneykslandi þá komi þetta mer ekki beint á óvart! Þessar lögregluaðgerðir eru magnaðar.

spurning hvort við fjölmennum ekki bara í lögguskólann? Það fylgja fríðindi
wolfman
Póstað: Saturday, January 30, 2010 1:09:18 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 4/9/2008
Póstar: 220
habladahabl... þvílíkt og annað eins að nenna að standa í þessum útreikningum fyrir svona smámunadóterí - ef sami metnaður væri nú lagður í að rannsaka milljarðabruðl örfárra manna?
Notendur að skoða þetta efni
Gestur Gestsson


Stökkva á spjall
Þú getur ekki póstað nýju efni í þetta spjall.
Þú getur ekki svarað efni í þessu spjalli.
Þú getur ekki eytt póstum þínum á þessu spjalli.
Þú getur ekki breytt póstum þínum á þessu spjalli.
Þú getur ekki búið til kannanir á þessu spjalli.
Þú getur ekki kosið í könnunum á þessu spjalli.

Knúið af Yet Another Forum.net útgáfu 1.9.1.8 (NET v2.0) - 3/29/2008
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.
Þetta spjall er 0.190 sekúndur frá 0-100.


Heyrst hefur
Punky Design 
 
auglysingar.is, fríar smáauglýsingar á netinu 
 
Netverslanir eshop 
 
Road Race deild AÍH 
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook