runarpet wrote:RR wrote:12 volt eru jú bara 12 volt
ertu að bulla eða ertu bara svona... ?
Þú getur vel notað hleðslutæki fyrir mótorhjólarafgeyma fyrir bílrafgeyma (sama gildir um að gefa start, getur gefið mótorhjóli start með bíl og öfugt).
Hann var að tala um að kaupa sér hleðslutæki fyrir mótorhjól sem hann gæti líka notað til að hlaða bílrafgeymi og málið er að hleðslutæki fyrir mótorhjólarafgeyma eru að hlaða með minni amperfjölda en venjulegt hleðslutæki fyrir bílrafgeyma og tekur því lengri tíma að hlaða rafgeyminn, en það er mun betra fyrir endingu rafgeymis og batterís að hlaða yfir lengri tíma, hraðhleðsla fer verr með rafgeymi/batterí.
Sjálfur er ég með hleðslutæki fyrir mótorhjólageyma sem er frá Hella og er bæði fyrir 6 og 12V, en það er að hlaða 0,8A fyrir 6V og 1,2A fyrir 12V, venjulegt bílhleðslutæki getur verið að hlaða í kringum 5-7A er mjög algengt.
Svona er hleðslutækið sem ég er með, en ég keypti það í bílanaust fyrir mörgum árum.

HTC Desire HD (Android 2.3)
HTC HD2 (Windows 6.5)
Iphone 4 32gb (iOS 4.3.3)
Samsung Galaxy S (Android 2.3)
Samsung Galaxy S II (Android 2.3)
Samsung Galaxy Note (Android 2.3)
Sony Ericsson Arc (Android 2.3)
Sony Ericsson X10 (Android 2.1)
Sony Ericsson X10 mini pro (Android 2.1)
Sony Ericsson C905
Sony Ericsson K850i
Sony Ericsson K800i
Sony Ericsson K750i