æji.. hvað skal segja..
motopark er einhvernvegin fyrirfram dauðadæmt batterí.. miklir draumórar í gangi þarna sem ég sé ekki verða að veruleika.. það er ekkert stórmál að byggja eina go-cartbraut, sér í lagi ef þú hefur slatta af byggingalóðum til að selja upp í kostnað.. en alvöru braut? not in my lifetime held ég.. en ég vona að ég hafi rangt fyrir mér.
Auðvitað hlýtur að vera gaman að leika sér aðeins með hugmyndir ofl.. fá erlenda aðila til að hanna braut og brautarstæði, og að sjálfsögðu fara menn á flug og ætla að sigra heiminn,, en svona í alvöru talað.. er líklegt að forríkir einstaklingar úti í heimi fari að kaupa sér íbúð þarna við Stapann? bara til að geta keyrt á brautinni? ef ég ætti fullt af milljónum myndi ég frekar kaupa mér íbúð við Monza, Suzuka eða einhverjum álíka hlýjum stað, bara lógík, og að þetta verði Formula1 braut.. það held ég að ég geti fullyrtt að verði aldrei að veruleika, kröfurnar sem eru við F1 brautir eru svo gríðarlegar að flest nýju löndin í F1 eru með þessar brautir á fjárlögum hjá sér..
Það er soldið asnalegt af mér að dissa þetta svona því ég er einn af þeim sem er að berjast fyrir braut, og flestir myndi segja að ég ætti að styðja þetta verkefni, en vandamálið er bara að ég tel að það hefði verið skynsamlegra að vera með fæturnar á jörðinni á þessu svæði, þarna úthlutaði Reykjanesbær nokkrum aðilum stóru landssvæði, og gaf þeim leyfi held ég til að selja þarna byggingalóðir til að fjármagna brautina, er þá ekki nær að klára allavega go-cart brautina, leggja kannski 4km hring og sjá svo til í framhaldi af því?
Það sem er líka soldið slæmt við þetta Motopark dæmi er að þegar leitað er til stjórnvalda og annara aðila sem ekkert vit hafa á motorsporti og reynt að fá vilyðri eða aðstoð til að búa til braut, er oft sagt "já, en er ekki verið að byggja braut þarna við Stapann?"
og svo svona alveg í lokin, þá get ég með engu móti séð neinsstaðar nein tímamörk á verkefninu.. ef einhver Motopark maður skyldi lesa þetta hér má sá sami mjög gjarnan koma með einhverjar upplýsingar,, því eins og þetta snýr að hinum almenn mótorposrtáhugamanni hér á Íslandi þá er eins og maður sé að lesa um framkvæmd á annari plánetu..
Support 182144118