|
|
 Tign: Nýliði Hópar: Meðlimur
Nýskráður: 9/13/2009 Póstar: 11 Staðsetning: Sauðárkrókur
|
Ég er með gamla Katana. Það fór að ganga einkennilega og missa kraft. Það gengur á innsoginu en ef ég gef því inn þá kæfir það á sér. Ég held að þetta séu kértin en hvað haldið þið um þetta?
|
|
|
|
|
|
 Tign: Ruddi Hópar: Ruddar
, Stjórnandi
Nýskráður: 11/24/2006 Póstar: 4,172
|
byrjaðu allavega á að skoða kertin.
En þetta hljómar soldið eins og bensínvandamál, gæti verið sían í krananum á tanknum, bensínsía (ef það er einhver) eða jafnvel að blöndungarnir séu orðnir stíflaðir.
er þetta 600 hjól?
Support 182144118
|
|
 Tign: Nýliði Hópar: Meðlimur
Nýskráður: 8/31/2009 Póstar: 84 Staðsetning: Keflavík
|
Ef hjólið gengur á innsoginu en ekki á gjöf eða án innsogs þá myndi ég byrja á að athuga blöndungana. Það eru allar líkur á því að það sé drulla í þeim, eða að það komi bara ekki nóg bensin úr tanknum.
En er það rétt ágiskun hjá mér að hjólið sé búið að standa lengi? Eða gerðist þetta hægt og bítandi?
Bensínkraninn á tanknum hefur 3 stillingar og ENGINN þeirra er lokuð, On, res, og prime, prime er alltaf opinn en hinar tvær opnast ekki nema hjólið sé komið í gang (þú ættir að sjá lögn frá lokanum að einum af soggreinunum frá blöndung að vél, þaðan kemur sogið sem opnar lokann).
Ef bensínið er gamalt eða að blöndungarnir ná ekki að fylla sig þá getur þetta komið fram eins og þú ert að lýsa vandamálinu.
Guð gefi mér elliglöp til að gleyma þeim sem ég þoldi ekki hvort sem er, Þá gæfu að rekast á þá sem mér líkaði við, Og sjón til að þekkja muninn
A.K.A. Addi_Sig Skotfljótir Arctic MC NÓGPWR
|
|
 Tign: Nýliði Hópar: Meðlimur
Nýskráður: 9/13/2009 Póstar: 11 Staðsetning: Sauðárkrókur
|
Þetta voru blöndungarnir. Ég hef nú sett það i gang reglulega í sumar og hreift það smá. Ég hef haft tánkinn stiltan á on þar sem það stendur nú mest, er það ekki betra að geyma það þannig? Var að fá mér þetta hef ekki átt hjól í 20 ár eða síðan ég var á skellinöðronum. Takk fyrir hjálpina. ps: Suzuki gsx 750 sd katana 1983
|
|
 Tign: Ruddi Hópar: Ruddar
, Stjórnandi
Nýskráður: 11/24/2006 Póstar: 4,172
|
gott mál.. jú, það er best að hafa tankinn bara á ON.. það á ekkert að leka ef hjólið er ekki í gangi.
Support 182144118
|
|
 Tign: Meðlimur Hópar: Meðlimur
Nýskráður: 4/13/2008 Póstar: 368 Staðsetning: hér og þar
|
Eru blöndungarnir ekki bara skítugir eftir að hafa staðið eitthvað?
En allavegana til hamingju með hjólið, mér hefur alltaf fundist þessi hjól mjög töff.
Kawasaki Zx9r
|
|
|
Gestur Gestsson |