Valmynd
Velkominn gestur Leita | Virk efni | Meðlimir | Tengjast | Nýskráning

Racer sem fyrsta hjól? Möguleikar · Skoða
rusticolus
Póstað: Sunday, June 21, 2009 7:55:43 PM

Tign: Nýliði
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 3/18/2007
Póstar: 17
Staðsetning: Reykjavík
Sælir.

Ég hef reyndar verið að fylgjast með spjallinu lengi, en ekki tjáð mig mikið sjálfur þar sem ég hef ekki átt hjól og einhvernvegin ekki fundist ég passa inn þessvegna.

Nú er hinsvegar komið að því að kaupa sér fyrsta hjólið líklega á næstu vikum og þessvegna er ég að velta þessari spurningu fyrir mér, með hversu gáfulegt sé að fá sér racer sem fyrsta hjól?

Ég hefði mestan áhuga á að kaupa mér 600cc racer, eða nakið. Er eitthvað sem þið getið mælt með frekar en annað og afhverju?

Ég hef t.d. sest upp á '05 árgerð af CBR-rr nýlega og fílaði ásetuna á því í tætlur. Ég er frekar lítill og nettur (svona þannig séð) og fannst ég ná betur niður af því en mörgu sem ég hef prófað. Hvernig eru þessi hjól að höndla?

Ég er meira að leita eftir einhverju fyrirsjáanlegu í akstri en einhverju keppnistæki, er ekki mikill speeddeamon, bara hrifnari af racer vegna einhvers sem ég get ekki skýrt.

Allavegana, þá væru góð ráð vel þegin, en annars væri bara vel þegið ef þið mynduð sleppa að rugla í mér! Anxious Alveg nógu ringlaður, sko... Shizo

Jónatan Jónsson
Honda CBR 600rr
Styrktaraðili
Póstað: Sunday, June 21, 2009 7:55:43 PM
Xodus ehf
Stevie the TV
Póstað: Sunday, June 21, 2009 8:06:51 PM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 1/15/2009
Póstar: 148
Staðsetning: Garðabær
sælir, ég byrjaði á Hondu CBR 600RR ´04 og ég fílaði það í tætlur, góðir aksturseiginleikar og ekkert viðhald sem að ég lenti í með það hjól. mæli með 600RR hjólunum.

RR hjólin eru ekki eins þægileg upp á langkeyrslu, þar eru naked hjólin og F Hondurnar mikið betri, eins og til dæmis þetta hjól
http://hjol.is/hjol/nr/106195/

gangi þér vel í leitinni að hjóli

www.road-race.net endilega kíkið á síðuna, og takið þátt í sumar
Haase Go kart 125cc ROTAX - í notkun
Kawasaki KX250F ´06 - í notkun
Honda CBR 1000RR ´07 - Selt
Honda CBR 600RR ´04 - R.I.P
Toyota Carina E - það er ekkert í þessum bíl sem kostar meira en 1000 kr
mattiml
Póstað: Sunday, June 21, 2009 10:00:05 PM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 4/7/2008
Póstar: 120
Staðsetning: Reykjavík
Ég fékk mér yamaha fz6 n 2006 sem fyrsta götuhjól. Það er streetfighter og ég næ léttilega niður með hælana á því, er samt bara 172 cm sirka Smile. Elska að keyra það innanbæjar sem utan (hef lengst farið til borgarnesar) og ótrúlega auðvelt að stýra því, ég mæli allveg með nöktum hjólum! Smile

Yamaha FZ6n 2006 (RIP)
Husqvarna WR250 2005 (Selt)
Yamaha YZ125 2003 (Selt)
Skyteam 200cc 2005 (Selt)
Speedy Gonzales
Póstað: Sunday, June 21, 2009 10:24:53 PM

Tign: Nýliði
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 4/22/2009
Póstar: 12
Staðsetning: Reykjavík
yamaha fz6n eða Kawasaki er6n bæði hjólin eru streetfighterar og mjög skemmtileg hjól í akstri hvort sem það er í langkeyrsu eða djöflast innanbæjar. Passlega kraftmikil og gamann að pimpa þau upp.


Speedy Gonzales hengdi við eftirfarandi mynd:
Fz6n.jpg
P5163091.jpg

busa
Póstað: Monday, June 22, 2009 9:11:51 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 2/9/2007
Póstar: 517
Staðsetning: keflavik
Gáfulegt og ekki gáfulegt. Sjálfur keypti ég mér Hayabusu 2005 árgerð sem fyrsta hjól og er núna á mínu öðru hjóli sem er R1 2007.
Fer allt eftir sjálfum þér og hvað þú treystir þér í.
runarpet
Póstað: Monday, June 22, 2009 10:07:54 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 11/29/2006
Póstar: 2,216
Staðsetning: Í Hafnarfirði, þar sem hjólafólkið býr
prófaðu að setjast á þau hjól sem þig langar í og keyptu bara út frá því

þetta er allt svo svipað

S.R.K. Hafnarfjarðar allt það nýjast í hjólaheiminum

Til hvers að vera í einhverju MC bulli... þegar þú getur verið í RC klúbbi...?
rusticolus
Póstað: Tuesday, June 23, 2009 10:33:42 AM

Tign: Nýliði
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 3/18/2007
Póstar: 17
Staðsetning: Reykjavík
Takk fyrir þetta, alltaf gaman að fá svona input í það sem maður er að pæla frá fólki með meir reynslu en maður sjálfur... Smile

Jónatan Jónsson
Honda CBR 600rr
Stevie the TV
Póstað: Tuesday, June 23, 2009 10:38:55 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 1/15/2009
Póstar: 148
Staðsetning: Garðabær
runarpet skrifaði:
prófaðu að setjast á þau hjól sem þig langar í og keyptu bara út frá því

þetta er allt svo svipað


sammála rúnka, bara máta, og kaupa það sem að þér fynst henta best, skiptir engu máli hvað þetta heitir, bara að þú sért sáttur

www.road-race.net endilega kíkið á síðuna, og takið þátt í sumar
Haase Go kart 125cc ROTAX - í notkun
Kawasaki KX250F ´06 - í notkun
Honda CBR 1000RR ´07 - Selt
Honda CBR 600RR ´04 - R.I.P
Toyota Carina E - það er ekkert í þessum bíl sem kostar meira en 1000 kr
Mr.Flanker
Póstað: Tuesday, June 23, 2009 11:47:00 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 4/28/2007
Póstar: 1,136
Staðsetning: Þar sem stuðið er
busa skrifaði:
Gáfulegt og ekki gáfulegt. Sjálfur keypti ég mér Hayabusu 2005 árgerð sem fyrsta hjól og er núna á mínu öðru hjóli sem er R1 2007.
Fer allt eftir sjálfum þér og hvað þú treystir þér í.


Hvernig endaði þetta aftur með Búsuna? Whistle

Annars er ég alveg sammála, ef menn treysta sér í stórt hjól og bara fara varlega ætti allt að vera í lagi, þetta fer allt eftir því hversu mikið þú snýrð upp á gjöfina. En sum hjól fyrirgefa meira en önnur og refsa ekki eins illa ef óvanur ökumaður gerir mistök. Það er alveg jafn auðvelt að slasa sig á afllitlu hjóli og aflmiklu ef menn vita ekki hvað þeir eru að gera.

It's not all about how much money you spend on the bike, it's how you drive it!

http://www.road-race.net
http://roadrace.spjallbord.net/
runarpet
Póstað: Tuesday, June 23, 2009 1:00:19 PM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 11/29/2006
Póstar: 2,216
Staðsetning: Í Hafnarfirði, þar sem hjólafólkið býr
rusticolus skrifaði:
Takk fyrir þetta, alltaf gaman að fá svona input í það sem maður er að pæla frá fólki með meir reynslu en maður sjálfur... Smile


Svo vil ég bara minna á það sem skiptir mestu máli!

"Til hvers að eiga eitthvað annað enn Suzuki... þegar þú getur átt Suzuki...?"

ThumbsUp

S.R.K. Hafnarfjarðar allt það nýjast í hjólaheiminum

Til hvers að vera í einhverju MC bulli... þegar þú getur verið í RC klúbbi...?
busa
Póstað: Tuesday, June 23, 2009 1:17:45 PM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 2/9/2007
Póstar: 517
Staðsetning: keflavik
Mr.Flanker skrifaði:
busa skrifaði:
Gáfulegt og ekki gáfulegt. Sjálfur keypti ég mér Hayabusu 2005 árgerð sem fyrsta hjól og er núna á mínu öðru hjóli sem er R1 2007.
Fer allt eftir sjálfum þér og hvað þú treystir þér í.


Hvernig endaði þetta aftur með Búsuna? Whistle

Annars er ég alveg sammála, ef menn treysta sér í stórt hjól og bara fara varlega ætti allt að vera í lagi, þetta fer allt eftir því hversu mikið þú snýrð upp á gjöfina. En sum hjól fyrirgefa meira en önnur og refsa ekki eins illa ef óvanur ökumaður gerir mistök. Það er alveg jafn auðvelt að slasa sig á afllitlu hjóli og aflmiklu ef menn vita ekki hvað þeir eru að gera.


Get lofað þér því að 600 súkka hefði farið alveg eins og busan fór Smile
Nema hvað busan varði mig betur heldur en hitt, því hún er auðvitað eins og volvo með loftpúðum og læti Dancing
Addi_Sig
Póstað: Monday, June 29, 2009 9:41:37 PM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 11/11/2007
Póstar: 158
Staðsetning: Keflavík
Ég byrjaði á '87 CBR1000 og flaug á hausinn, en það kom stærðinni á hjólinu ekkert við. Ásetan skiptir náttúrulega mestu máli, hvernig þú fílar hjólið og svoleiðis, svo er bara að passa sig að fara ekki framúr sjálfum sér. Ég á Hayabusu núna og er rétt hættur að vera hræddur við það, en mér finnst Hayabusan ekki fyrirgefa mistök. Þó GSX-F 750 hjólið sem ég átti sé næstum jafn þungt þá finnst mér það mun léttara í akstri.
Ég er ekki viss um að ég fengi mér svona stórt hjól ef ég færi að endurnýja núna, mér líkar helvíti vel við 600 Gixxerinn sem konan mín á.
En endilega skoðaðu bara hvað er til og hvað þér líst á, ef þú passar þig þá skiptir í raun engu hverju þú byrjar á, maður lærir alltaf fyrr eða síðar, og mundu bara að sá sem aldrei hefur gert mistök kann ekki neitt.....


Ég sagði ekki að þetta væri þér að kenna,
ég sagðist ætla að kenna ÞÉR um þetta

A.K.A. Startarinn
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR
Skratti
Póstað: Monday, June 29, 2009 10:59:16 PM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 5/28/2008
Póstar: 140
Staðsetning: Mosóóóó
Ég er með fína Hondu handa þér (600rr) ég byrjaði sjálfur á því. mjög þægilegt hjól ;)

Honda CBR-600RR 2005

PÚKAR

Hook1
Póstað: Saturday, July 04, 2009 12:10:01 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 7/31/2008
Póstar: 205
Staðsetning: RVK
Addi_Sig skrifaði:
Ég á Hayabusu núna og er rétt hættur að vera hræddur við það, en mér finnst Hayabusan ekki fyrirgefa mistök. Þó GSX-F 750 hjólið sem ég átti sé næstum jafn þungt þá finnst mér það mun léttara í akstri.

Svo hjartanlega sammála og alveg viss um að ég væri löngu dauður ef fyrsta hjól yfir 250cc hefði ekki verið Suzuki GSX-F 750, þessi tegund af Súkku fyrirgefur eiginlega allt og eru snilld í langkeyrslu þar sem maður þarf ekki að sitja eins og "kripplingur" á hjólinu.

Ég mæli með að þú prufir að setjast á GSX-F og sjáir hvernig þetta henti þér.

Burtséð hvernig hjól þú verslar á endanum þá er bara að vera dugleg/ur að mæta uppá braut og kynnast hjólinu vel. mc

Ég er ekki alveg að fíla það að vera alltaf að missa af einhverju.
Eftir að ég fékk radarvara er ég alltaf að missa af punktum og sektarboðum....
Ekki Þitt kerfi
Notendur að skoða þetta efni
Gestur Gestsson


Stökkva á spjall
Þú getur ekki póstað nýju efni í þetta spjall.
Þú getur ekki svarað efni í þessu spjalli.
Þú getur ekki eytt póstum þínum á þessu spjalli.
Þú getur ekki breytt póstum þínum á þessu spjalli.
Þú getur ekki búið til kannanir á þessu spjalli.
Þú getur ekki kosið í könnunum á þessu spjalli.

Knúið af Yet Another Forum.net útgáfu 1.9.1.8 (NET v2.0) - 3/29/2008
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.
Þetta spjall er 0.328 sekúndur frá 0-100.


Heyrst hefur
Punky Design 
 
auglysingar.is, fríar smáauglýsingar á netinu 
 
Netverslanir eshop 
 
Road Race deild AÍH 
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook