Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

2 Síður12>
Fyrsta Road Race æfing sumarsins
GULAG Offline
#1 Posted : 5. maí 2009 12:13:58(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.293
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Fyrsta Road Race æfing sumarsins verður haldinn Fimmtudaginn 7. maí 2009 og hefst kl. 19:30.
Æfingin verður haldin á RC brautinni við Krísuvíkurveg.

Nokkrar breytingar verða gerðar frá því í fyrra.

Skipt verður í 3 flokka,
1 Flokkur: Þeir sem eru óvanir, keyrt er með starfsmanni í braut og er framúrakstur bannaður. Í þessum flokk eru Gore Tex gallar með hlífum leyfðir sem og aðrir gallar með hlífum.
2 Flokkur: Vanir, keyrt er í braut án starfsmanns, en framúrakstur er bannaður, leðurgalli og bakbrynja er skilyrði.
3 Flokkur: Vanir, keyrt er í braut án starfsmanns, framúrakstur er leyfður, leðurgalli og bakbrynja er skilyrði.

Starfsmenn RR-AIH ákveða í hvaða flokk einstaklingar keyra og hafa einir leyfi til að færa fólk milli flokka.

Við viljum taka fram að hjól verða skoðuð, með öryggisatriði í huga, ss. dekk, bremsur, legur ofl. Hjólin þurfa ekki að vera á númerum.
Einnig verða gallar og hjálmar skoðaðir.

Verð:
Skráðir meðlimir í RR-AIH kr. 1.000,-
Aðrir: kr. 2.000,-

Sjáumst hress...

Stjórnin.
Support 182144118
Sponsor
Xodus ehf
Lobo Offline
#2 Posted : 5. maí 2009 12:20:16(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 24.5.2007(UTC)
Posts: 112
Location: Reykjavík

Er ekki nóg að vera í einhverju félagi innan MSÍ til að greiða 1000 ?
GULAG Offline
#3 Posted : 5. maí 2009 13:25:53(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.293
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Aðeins þeir sem eru félagar í deild innan AÍH greiða 1000 kallinn.. aðrir 2000 kall.
Support 182144118
Orlandi10 Offline
#4 Posted : 5. maí 2009 16:33:46(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 4.3.2009(UTC)
Posts: 173
Location: Selfoss

Verða einhverjar brynjur a staðnum sem hægt verður að fá lánað ???
Palli Offline
#5 Posted : 5. maí 2009 17:34:16(UTC)
Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 9.12.2007(UTC)
Posts: 142
Man

Orlandi10 wrote:
Verða einhverjar brynjur a staðnum sem hægt verður að fá lánað ???


Svonalagað fæst í Púkanum Grensásvegi(og á fleirri stöðum)og kostar rétt ríflega það sem einn tankur af bensíni/dísel kostar á meðalstórann fjölskyldubílWink

Ef menn hafa ekki efni á þessu, þá hafa þeir ekki efni á að eiga hjólBoo hoo!
"Of all tyrannies, a tyranny exercised for the good of its victims may be the most oppressive. It may be better to live under robber barons than under omnipotent moral busybodies. The robber baron's cruelty may sometimes sleep, his cupidity may at some point be satiated; but those who torment us for our own good will torment us without end, for they do so with the approval of their own conscience." -- C.S. Lewis
Mr.Flanker Offline
#6 Posted : 5. maí 2009 18:13:53(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

Tek undir með þér í þessu Palli, það er algjört skilyrði að fólk hjóli almennt (ekki bara á RR æfingum) með brynju og fjárfesti í þannig búnaði. En það verður allavega ein lánsbrynja í boði fyrir þá sem vantar til að leifa fólki að prófa, en sú brynja er ekki hugsuð þannig að fólk fái hana á hverri æfingu. Við ætlumst frekar til þess að fólk kaupi sér brynju til eignar en þarna gefum við fólki kost á að prófa.
iceboy785 Offline
#7 Posted : 5. maí 2009 19:29:24(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 4.12.2008(UTC)
Posts: 80

Fimmtudagurinn gæti bara orðið snilld.... lendi á klakanum kl 1525 og þá er ekki um neitt annað að ræða en að kikja upp á braut til ykkar er það nokkuð?

Menn virðast vera að velta þessum barbrynjum mikið fyrir sér og þá væntanlega kostnaðiSad

Ég á brynju sem er bara mjög fin, allavega finnst mér það.
Ég verð náttúrulega með hana á fimmtudaginn og þá er alveg hægt að leyfa fólki að skoða, því að þessar brynjur eru á tilboði núna, (sá það í gær) og kosta eins og gengið er i dag 8000 kall..... og það er nú peningur sem allir sem eiga hjól ættu að geta séð af á svona mikilvægan hlut
live fast
die young
be a good looking corpse

busa Offline
#8 Posted : 5. maí 2009 19:37:41(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 9.2.2007(UTC)
Posts: 543
Man
Location: keflavik

Hvernig verður hópað niður?
Þ.e.a.s hvernig verða hóparnir settir upp. Ég gæti litið á mig sem besta hjólamann í heimi en væri í raun byrjandi. Verður fólk pikkað út og fært á milli ef það hefur ofmetið sjálfan sig?
Mr.Flanker Offline
#9 Posted : 5. maí 2009 20:21:38(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

Við erum öll nokkuð með það á hreinu hvernig á að skipta niður í hópa þegar kemur að fólki sem sótti æfingar í fyrrasumar. Svo verður bara að koma í ljós með aðra en við viljum að fólk vinni sig upp í hópunum. Góður hjólari fer ekki beint í þriðja hópinn ef hann hefur aldrei hjólað áður á brautinni, fólk þarf líka að kynnast henni og það er betra að gera það í hægari hóp. Svo er ekkert mál að fá flutning ef þannig ber undir.

Við erum öll í þessu saman og bæði þátttakendur og stjórnendur eru að gera margt í fyrsta sinn, við munum því öll læra af reynslunni en mikilvægast er að við skemmtum okkur öll saman og hjálpum hvert öðru.
Addi_Sig Offline
#10 Posted : 5. maí 2009 20:31:11(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 11.11.2007(UTC)
Posts: 158
Location: Keflavík

Ég vil bara byrja á byrjuninni og vill alls ekki láta troða mér eitthvað uppávið án þess að prófa hægasta hópinn. Enda hef ég ekkert farið á brautina áður. En ég ætla að reyna að láta sjá mig á fimmtudaginn
Ég sagði ekki að þetta væri þér að kenna,
ég sagðist ætla að kenna ÞÉR um þetta

A.K.A. Startarinn
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR
Mr.Flanker Offline
#11 Posted : 5. maí 2009 20:34:29(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

Glæsilegt, byrjendur (hvort sem það eru alvöru byrjendur eða vanir sem hafa ekki farið á brautina áður) eru sérstaklega velkomnir. Það þarf enginn að vera feiminn við að mæta og prófa.
Orlandi10 Offline
#12 Posted : 5. maí 2009 20:42:56(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 4.3.2009(UTC)
Posts: 173
Location: Selfoss

Palli wrote:
Orlandi10 wrote:
Verða einhverjar brynjur a staðnum sem hægt verður að fá lánað ???


Svonalagað fæst í Púkanum Grensásvegi(og á fleirri stöðum)og kostar rétt ríflega það sem einn tankur af bensíni/dísel kostar á meðalstórann fjölskyldubílWink

Ef menn hafa ekki efni á þessu, þá hafa þeir ekki efni á að eiga hjólBoo hoo!


Ég á nú meðal stóran fjölskyldubíl og það kostar ekki 30000kr að fylla hann, það kostar allavega Alpinestar brynja hjá Benna...

Annars er ég sammála að það sé must að eiga svona, næ bara ekki að kaupa fyrir fimmtudag...
Hook1 Offline
#13 Posted : 5. maí 2009 22:22:04(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 31.7.2008(UTC)
Posts: 221
Location: RVK

ALLIR sem ekki hafa prófað að mæta á brautina legg ég til að ALLIR prufi, Þetta er þvílík snilld !!!
Verslaði brynju síðasta sumar 15.000kall... Núna hjóla ég ekki án hennar, frekar en ég hjóla án hjálms...Alpinestar, eins og margir hafa tjáð sig um á þessum vef áður þá finn ég stundum fyrir axlaböndunum en oftast finn ég ekkert fyrir böndunum.
Ég er ekki alveg að fíla það að vera alltaf að missa af einhverju.
Eftir að ég fékk radarvara er ég alltaf að missa af punktum og sektarboðum....
Ekki Þitt kerfi
Davíð Offline
#14 Posted : 5. maí 2009 22:31:40(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 25.2.2008(UTC)
Posts: 174
Man
Location: deild 33 A

djö.... ég þarf að mæta á mikilvægan fund þetta kvöld Crybaby en hvað er þetta lengi og hvenar gæti þetta orðið næst ? er þetta á einhverjum x vikna fresti ?
KAWASAKI ZX6R - 2007
Mr.Flanker Offline
#15 Posted : 5. maí 2009 23:02:41(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

Við hjólum til myrkurs og verðum alla fimmtudaga í sumar á Akstursíþróttasvæði AÍH. Götuhjól á fimmtudögum og Super-Moto á þriðjudögum.

Allar nánari upplýsingar á www.road-race.net
pgxsr Offline
#16 Posted : 6. maí 2009 09:05:26(UTC)

Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 31.1.2008(UTC)
Posts: 93
Location: Reykjavík

Þarf maður að koma með kvittun úr banka til að sýna framá að maður sé búinn að borga í RR-AÍH til að þurfa ekki að borga 2000 kall, fyrst það bólar ekkert á kortinu?
,,ef þú hefur ekkert gáfulegt til málanna að leggja, skaltu bara þegja"
Mrs. Yu Offline
#17 Posted : 6. maí 2009 09:29:41(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 26.1.2007(UTC)
Posts: 1.303
Woman

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Nei, ég verð með útprentaðan lista yfir greidda.
Haffman Offline
#18 Posted : 6. maí 2009 09:36:45(UTC)
Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 20.1.2007(UTC)
Posts: 949

Mrs. Yu wrote:
Nei, ég verð með útprentaðan lista yfir greidda.


Er borgað upp á braut eða á N1 ?
Mr.Flanker Offline
#19 Posted : 6. maí 2009 09:42:43(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

N1 miðarnir eru ekki klárir þannig það verður tekið við þátttökugjaldi upp á braut. Vinsamlega komið með seðla þar sem við erum ekki með posa.
Skratti Offline
#20 Posted : 6. maí 2009 16:56:04(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.5.2008(UTC)
Posts: 140
Man
Location: Mosóóóó

Ég ætla að mæta með cameru og reyna að gera eitthvað flott kynningarmyndbandWink

Þannig að menn verða að mæta á nýbónuðum hjólumThumbsUp
Honda CBR-600RR 2005

PÚKAR

Addi_Sig Offline
#21 Posted : 6. maí 2009 19:45:09(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 11.11.2007(UTC)
Posts: 158
Location: Keflavík

Mitt kemur á kerru úr slyddunni fyrir norðan þannig að ég geri ekki ráð fyrir að það verði neitt sérstaklega hreint......
Ég sagði ekki að þetta væri þér að kenna,
ég sagðist ætla að kenna ÞÉR um þetta

A.K.A. Startarinn
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR
mattiml Offline
#22 Posted : 6. maí 2009 23:10:52(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 7.4.2008(UTC)
Posts: 141
Location: Reykjavík

Hvernig er þetta þar sem ég er nú byrjandi, er einhver dagskrá eða? Hjóla hóparnir til skiptist eða ? Og hvað er maður að fara að fá langan tíma í brautinni fyrir þennan 2000kall? :D
Yamaha FZ6n 2006 (RIP)
Husqvarna WR250 2005 (Selt)
Yamaha YZ125 2003 (Selt)
Skyteam 200cc 2005 (Selt)
Haffman Offline
#23 Posted : 6. maí 2009 23:13:48(UTC)
Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 20.1.2007(UTC)
Posts: 949

mattiml wrote:
Hvernig er þetta þar sem ég er nú byrjandi, er einhver dagskrá eða? Hjóla hóparnir til skiptist eða ? Og hvað er maður að fara að fá langan tíma í brautinni fyrir þennan 2000kall? :D


Hóparnir eru keyrðir til skiptist 10-15 min í senn fer eftir stærð á hópi. Ekki láta blekkjast á 10-15 min því það er mjög langur tími á braut og flestir eru búnir á því eftir svo langan tíma.
Hook1 Offline
#24 Posted : 6. maí 2009 23:26:08(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 31.7.2008(UTC)
Posts: 221
Location: RVK

Haffman wrote:
mattiml wrote:
Hvernig er þetta þar sem ég er nú byrjandi, er einhver dagskrá eða? Hjóla hóparnir til skiptist eða ? Og hvað er maður að fara að fá langan tíma í brautinni fyrir þennan 2000kall? :D


Hóparnir eru keyrðir til skiptist 10-15 min í senn fer eftir stærð á hópi. Ekki láta blekkjast á 10-15 min því það er mjög langur tími á braut og flestir eru búnir á því eftir svo langan tíma.

Svo nátturulega ekkert sem segir að þú þurfir að binda þig við einhvern ákveðinn flokk, gætir hjólað með hóp 1 og hóp 2. (en eins og var komið fram þá tekur þetta aðeins á)...mc
Ég er ekki alveg að fíla það að vera alltaf að missa af einhverju.
Eftir að ég fékk radarvara er ég alltaf að missa af punktum og sektarboðum....
Ekki Þitt kerfi
Gix1078 Offline
#25 Posted : 7. maí 2009 02:45:23(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 3.634
Man
Location: útlönd

Mr.Flanker wrote:
N1 miðarnir eru ekki klárir þannig það verður tekið við þátttökugjaldi upp á braut. Vinsamlega komið með seðla þar sem við erum ekki með posa.


hehe... sorry Oskar.. ég bara vard!! úr hverju eru thessir midar eiginlega?? thad er ekki svona erfitt ad prenta thetta... samningurinn var tilbúinn í vetur!

(EKKI taka thessu illa, thetta er EKKI svoleidis skot.. Wink )
if you don´t like who i am, or what i do, you can just fuck off.
evab Offline
#26 Posted : 7. maí 2009 10:48:15(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 6.6.2008(UTC)
Posts: 414
Woman
Location: Reykjavik

jæja... ég er að hugsa um að koma Smile
bara þessi malarkafli upp að brautinni sem setur smá strik í reikningin.... ætla þó að reyna Smile vonandi kemst ég alla leið Anxious
Honda CBR 1000RR Fireblade 2007
Mrs. Yu Offline
#27 Posted : 7. maí 2009 11:15:47(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 26.1.2007(UTC)
Posts: 1.303
Woman

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Hook1 wrote:

Svo nátturulega ekkert sem segir að þú þurfir að binda þig við einhvern ákveðinn flokk, gætir hjólað með hóp 1 og hóp 2. (en eins og var komið fram þá tekur þetta aðeins á)...mc


Hook1. Vertu ekki að bulla um hluti sem þú veist ekkert um. Þátttakendur á æfingunum ráða því ekki sjálfir í hvaða hóp þeir hjóla á fyrstu æfingunni sinni. (og reyndar heldur ekki annarri eða þriðju o.s.frv.)


evab wrote:
jæja... ég er að hugsa um að koma Smile
bara þessi malarkafli upp að brautinni sem setur smá strik í reikningin.... ætla þó að reyna Smile vonandi kemst ég alla leið Anxious


Þú hringir bara ef þú lendir í vandræðum og ég hjálpa þér. ;)
Mr.Flanker Offline
#28 Posted : 7. maí 2009 11:27:48(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

mattiml wrote:
Hvernig er þetta þar sem ég er nú byrjandi, er einhver dagskrá eða? Hjóla hóparnir til skiptist eða ? Og hvað er maður að fara að fá langan tíma í brautinni fyrir þennan 2000kall? :D


Hópnum er skipt í þrjá hópa eftir getu og reynslu, stundum eru bara 2 hópar og fer það allt eftir hvernig hópurinn er samsettur. Hver hópur keyrir í 10-15 mín eins og Haffi sagði og er það yfirdrifið nóg, sumir endast ekki svo lengi. Það er betra að taka því rólega á fyrstu æfingunum, kynnast brautinni og klára ekki allt úthald í fyrstu umferð og geta ekki verið með í síðari umferðum.

Svo borgar þú ekki 2000 kr, þú gengur bara í félagið og borgar 1000! Félögum í AÍH verður einnig boðið að kaupa árskort á kr. 10.000 sem stendur öðrum ekki til boða.
Lobo Offline
#29 Posted : 7. maí 2009 11:31:00(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 24.5.2007(UTC)
Posts: 112
Location: Reykjavík

Gildir árskort fyri supermoto líka ?
Skratti Offline
#30 Posted : 7. maí 2009 11:36:13(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.5.2008(UTC)
Posts: 140
Man
Location: Mosóóóó

10-15 mín er langur tími á þessari braut.

Vona að veðrið haldist Pray
Honda CBR-600RR 2005

PÚKAR

GULAG Offline
#31 Posted : 7. maí 2009 11:39:32(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.293
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Lobo wrote:
Gildir árskort fyri supermoto líka ?


já..
Support 182144118
busa Offline
#32 Posted : 7. maí 2009 12:10:29(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 9.2.2007(UTC)
Posts: 543
Man
Location: keflavik

ég mæti pottþétt og ég fer í byrjendahóp að eigin ósk. Er á nýju hjóli og hef aldrei hjólað á brautinni.
mattiml Offline
#33 Posted : 7. maí 2009 14:38:48(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 7.4.2008(UTC)
Posts: 141
Location: Reykjavík

Mr.Flanker wrote:
mattiml wrote:
Hvernig er þetta þar sem ég er nú byrjandi, er einhver dagskrá eða? Hjóla hóparnir til skiptist eða ? Og hvað er maður að fara að fá langan tíma í brautinni fyrir þennan 2000kall? :D


Hópnum er skipt í þrjá hópa eftir getu og reynslu, stundum eru bara 2 hópar og fer það allt eftir hvernig hópurinn er samsettur. Hver hópur keyrir í 10-15 mín eins og Haffi sagði og er það yfirdrifið nóg, sumir endast ekki svo lengi. Það er betra að taka því rólega á fyrstu æfingunum, kynnast brautinni og klára ekki allt úthald í fyrstu umferð og geta ekki verið með í síðari umferðum.

Svo borgar þú ekki 2000 kr, þú gengur bara í félagið og borgar 1000! Félögum í AÍH verður einnig boðið að kaupa árskort á kr. 10.000 sem stendur öðrum ekki til boða.


Hehe ég hafði aldrei hugsað mér neitt annað en að vera í byrjendarhópnum, en hérna ég hef 1x komið útí þessa braut áður en ég man ekkert hvar maður á að beygja, gæti einhver deilt því? :D
Yamaha FZ6n 2006 (RIP)
Husqvarna WR250 2005 (Selt)
Yamaha YZ125 2003 (Selt)
Skyteam 200cc 2005 (Selt)
Mrs. Yu Offline
#34 Posted : 7. maí 2009 15:00:32(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 26.1.2007(UTC)
Posts: 1.303
Woman

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
mattiml wrote:

Hehe ég hafði aldrei hugsað mér neitt annað en að vera í byrjendarhópnum, en hérna ég hef 1x komið útí þessa braut áður en ég man ekkert hvar maður á að beygja, gæti einhver deilt því? :D


Það er skilti við veginn á hægri hönd þegar þú keyrir eftir Krísuvíkurveginum. Þetta fer ábyggilega ekkert framhjá þér. Wink

Ef þú lendir í veseni hringdu þá bara í Óskar 664-2131.
runarpet Offline
#35 Posted : 7. maí 2009 15:27:34(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Smá forskot á sæluna

[img]http://farm4.static.flickr.com/3613/3509868571_345d4e27b7.jpg?v=0[/img]
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
Stevie the TV Offline
#36 Posted : 7. maí 2009 15:33:03(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 15.1.2009(UTC)
Posts: 169
Location: Garðabær

runarpet wrote:
Smá forskot á sæluna

[img]http://farm4.static.flickr.com/3613/3509868571_345d4e27b7.jpg?v=0[/img]


djöfull er Mr. Wanker flottur
www.road-race.net endilega kíkið á síðuna, og takið þátt í sumar
Haase Go kart 125cc ROTAX - í notkun
Kawasaki KX250F ´06 - í notkun
Honda CBR 1000RR ´07 - Selt
Honda CBR 600RR ´04 - R.I.P
Toyota Carina E - það er ekkert í þessum bíl sem kostar meira en 1000 kr
Mrs. Yu Offline
#37 Posted : 7. maí 2009 16:24:12(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 26.1.2007(UTC)
Posts: 1.303
Woman

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Enda sá fallegasti á landinu og þótt víðar væri leitað!
runarpet Offline
#38 Posted : 7. maí 2009 16:27:04(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Já og heyrst hefur að þessir þrír durgar munu sjá um skemmtiatriðin og halda upp stemmningu á svæðinu með frumsömdum rapplögum

[img]http://farm4.static.flickr.com/3614/3510002331_8dcbd87999.jpg?v=0[/img]
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
Hook1 Offline
#39 Posted : 8. maí 2009 02:20:10(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 31.7.2008(UTC)
Posts: 221
Location: RVK

Mrs. Yu wrote:
[quote=Hook1]
Svo nátturulega ekkert sem segir að þú þurfir að binda þig við einhvern ákveðinn flokk, gætir hjólað með hóp 1 og hóp 2. (en eins og var komið fram þá tekur þetta aðeins á)...mc


Hook1. Vertu ekki að bulla um hluti sem þú veist ekkert um. Þátttakendur á æfingunum ráða því ekki sjálfir í hvaða hóp þeir hjóla á fyrstu æfingunni sinni. (og reyndar heldur ekki annarri eða þriðju o.s.frv.)

Ég sagði aldrei að hann réði því sjálfur í hvaða hóp hann myndi hjóla með, benti bara á þann möguleika að hann gæti (ef almættinu hentaði) prufað fleiri en einn hóp, óþarfi að láta eins og ég hafi pissað í stígvélið þitt. Wink
Ég er ekki alveg að fíla það að vera alltaf að missa af einhverju.
Eftir að ég fékk radarvara er ég alltaf að missa af punktum og sektarboðum....
Ekki Þitt kerfi
Kidlingur Offline
#40 Posted : 8. maí 2009 14:33:59(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 13.4.2008(UTC)
Posts: 415
Location: hér og þar

Var eitthvað um minniháttar kröss í gær?
Suzuki Hayabusa 2004
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
2 Síður12>
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook