MotoGP
Hef alltaf fílað Colin Edwards og vona að honum gangi vel, en því miður fer hann alltaf afturábak í keppni þó að hann geti Qualifyað mjög vel. Vann einu sinni Official Practice í Jerez og keyrði í burtu á nýjum BMW. Vann næstum á Assen brautinni en klúðraði því í síðustu beygjunni og Nicky Haiden komst frammúr. Hann er svona dark horse underdog sem mun því miður aldrei fara með sigur af hólmi. Hann er örugglega sá besti í MotoGP sem hefur aldrei unnið keppni. Annars byrjaði ég að fíla Rossi 2004 þegar hann byrjaði hjá Yamaha, gleymi aldrei fyrsta sigrinum á Velkom brautinni í Suður-Afríku. Fíla líka mjög vel James Toseland og sérstaklega Jorge Lorenzo (hvað eiga þessi 4 sameiginlegt).
Afturámóti þoli ég ekki Biaggi, Pedrosa og Gibernau, þvílíkir vælukjóar!
SBK
Elbowz (Spies) er náttlega aðalmaðurinn þar, gjörsamlega geðveikur. Hef fylgst með Haga lengi þar sem hann var hjá Yamaha í langan tíma, sá gaur kann að slæda. Fannst mjög gaman að horfa á James Toseland í SBK og finnst leiðinlegt hvað honum gengur illa í MotoGP. Svo gömlu kempurnar Troy Corser og Troy Bailiss, það var alltaf gaman að sjá þá taka unglingana í kennslustund, svipað og Capirossi gerir stundum í MotoGP. Það gefur manni von um að það sé ekki allt búið hjá manni þó að maður sé kominn á fertugsaldurinn.
