Rank: Ruddi
Groups: Ruddar, Stjórnandi Joined: 24.11.2006(UTC) Posts: 4.293  Location: Hafnir City Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
|
Við í Ruddum ætlum að mæta, þér er velkomið að koma með... Doktorinn wrote:Það styttist óðum í fyrstu hópkeyrsluna okkar. Ætlunin er að safnast saman á Shellstöðinni á Vesturlandsvegi eins og í fyrra og aka Hvalfjörðinn upp á Skaga. Sniglar ætla að nema staðar í Mörkinni, en Trúboðar ætla að halda áfram eftir smá stopp og ljúka deginum með vöfflum, súkkulaði og Mótorhjólatónleikum í Filadelfíu. Til þess að mýkja tímamörkin frá því í fyrra verður lagt til í fyrirhugaðri dagskrá að mæta kl 12 og leggja af stað kl 12:30 eða hálftíma fyrr en síðast. Yfirskrift dagsins er annars vegar: "Þín varkárni - allra öryggi" og hins vegar: "Öruggari umferð - öruggari heimkoma"! Vegna almennrar ánægju með dagskrána og baráttuorðin í fyrra viljum við aftur hvetja formenn og félaga til breiðrar samstöðu á þessum degi. Það sínum við bezt með því að fjölmenna á götunum sem og að raða klúbbamerkjum okkar á auglýsinguna sem nú er í smíðum. Ég sendi hér með auglýsinguna eins og hún var í fyrra, en þar verður merkjum vonandi fjölgað og dagskrártexti (sem verður með líku sniði) minnkaður. Ég væri því þakklátur formönnum fyrir að senda tilbaka klúbbmerki sitt til að setja á nýju auglýsinguna. Hugmyndin er að hún fari sem fyrst á heimasíður og til upphengingar á sem flestum stöðum, þar sem ekki er til peningur til birtingar í Fréttablaðinu eins og í fyrra! Samstöðukveðjur, Doktorinn #3 Support 182144118
|