Mig er búið að klægja í puttana frá 10 ára aldri að fá mér hjól, og er að pæla að gera loksins eitthvað í því. Málið er að ég veit í raun ekkert hvar ég á að byrja.. Það er rosalega týpískt fyrir mig að gera einhverjar svakalegar gloríur þegar ég er að byrja á einhverju svona... Mér var ráðlagt að byrja bara alveg á byrjuninni og fá mér 50cc skellinöðru til að fá tilfininguna fyrir þessu, og ef ég er staðráðin í að vilja halda þessu áfram að taka þá A réttindin.. Svo eru aðrir sem segja að ég ætti bara að taka þau strax, og enn aðrir sem segja að það taki því ekki fyrr en ég er 21 árs.
Þegar ég er búin að vera að leita að upplýsingum virðist ég alltaf lenda á einhverjum 14 ára kjánum með rosalegar skoðanir sem veita í raun enga hjálp, svo ég var að vonast til þar sem þetta spjall er nánast einungis hjólaáhugafólk að ég fái einhver gáfulegri svör en 'öhh þúzt brah 300cc sko racer og skór skilruh'..
-Fyrirfram þökk,
Sóla
