Meðalhjálmur er um 1500 grömm, og fallhæð uppá einn metra gefur ekki mikinn hraða.
Ef það kemur dæld í hjálminn þá dreifir hann ekki högginu mikið þegar það er kominn haus inn í hjálminn og búkur fastur við hausinn, ásamt frekar meiri ferð á öllu saman.
Ég myndi segja að efnið í hjálminum sé eitthvað annarlegt og ekki gott að hafa hann á haus við fall.
PS: hjálmur gerir margt við högg.
skelin dreifir högginu eins og hægt er, hún brotnar líka og virkar eins og krumpusvæði á bíl, þeas, orkan sem fer í að kurla skelina, fer ekki í að kurla hauskúpuna.
Froðuplastið fyrir innan skel, dreifir síðan högginu enn meir, virkar líka eins og krumpusvæði, og hægir á hausnum í stað þess að hann stöðvist samstundis við að skalla malbikið.
( minni neikvæð hröðun )
Ef skelin brotnar við að falla á gólf, og svo ílla að það kemur dæld, þá er hún algerlega vonlaus sem krumpusvæði við þyngra högg, þú gætir alveg eins verið með skítuga lopahúfu á hausnum.
Bæn mín til Frikkans: " PRRRUMMMPP!"