Eftir mikinn lestur um allt milli himins og jarðar varðandi yfirlýsingu Rudda fór ég að spá hvað við getum raunverulega gert til að koma þessu verkefni af stað.
Nú tilheyri ég ekki Sniglum, Ruddum, HSL, né öðrum klúbbum þó ég eigi racer og þekki þar með ekki nógu vel hvernig þessi samtök/klúbbar starfa í dag.
En ef þessar tölur eru réttar, þ.e.a.s. að um 11.000 manns tilheyri þessum hóp “bifhjólamönnum” er þá ekki grundvöllur til að stofna íþróttafélag, samskonar og Vélhjólaíþróttaklúbburinn VÍK (nema þeir séu tilbúnir að stækka sinn), sem stendur að því að afla tekna svo hægt sé að byggja brautir og æfingasvæði fyrir bifhjólamenn af öllum stærðum og gerðum?
Árið 2004 voru skráðir 69.153 íþróttaiðkendur innan ÍSÍ, og þar af er fjölmennasta félagið TBR með 3.889 iðkendur og í þriðja sæti er Golfklúbbur Rvíkur með 2.310 iðkendur. (Sjá
http://www.isi.is/iw_cac...T%F6lfr%E6%F0i_2004.pdf)Þarna má sjá að augljóslega er grundvöllur fyrir stofnum slíks félags.
Eftir því sem ég hef séð, þá vinnur VVÍK gott starf til að þrýsta á að æfingasvæði séu sett upp fyrir torfæruhjólin. Skv. vefnum þeirra, eru nú þegar brautir á 11 stöðum á landinu.
Hvers vegna ættu götuhjólamenn/konur ekki að geta gert það sama?
Ef ég gef mér að slíkt félag yrði stofnað og tekið inn í ÍSÍ, er strax kominn grundvöllur fyrir þrýstingi á Ríkið og sveitarfélög, auðveldara aðgengi að fyrirtækjastyrkjum svo ótalið sé ýmislegt eins og félagsgjöld sem nýtt gætu verið í byggingu þessara svæða. Ótalið er þá samstarf við önnur akstursíþróttafélög, umferðarstofu og aðra sem gætu haft gagn af slíkum svæðum.
Til þess að dæmið gangi upp, þurfa allir sem að málinu koma að slíðra þessi ímynduðu sverð sem virðast vera á lofti milli klúbbanna og Snigla og vinna saman. Safna þyrfti saman röggsömum hóp fólks til að stýra þessu félagi sem að mínu mati ætti að vera stýrt nákvæmlega eins og öðrum íþróttafélögum.
Hvað finnst ykkur, er þetta ómögulegt?