Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

Einn nýr hér ;o)
Shadowman Offline
#1 Posted : 10. desember 2008 20:19:02(UTC)

Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 10.12.2008(UTC)
Posts: 31
Man
Location: Hafnarfjörður

Eftir að Snigla-spjallið lokaði þá ákvað ég að skrá mig hér hjá ykkur. Þessi klúbbur er kannski meira "Race" heldur en "Cruiser" en einhverstaðar verða vondir að vera.

Ég heiti Hörður og er 28 ára Hafnfirðingur. Ég tók prófið núna í sumar og keypti mitt fyrsta hjól einnig í sumar (reyndar áður en ég fékk prófið). Shhh

Ég fékk mér 2003 árg. af Hondu Shadow American Classic Edition VT1100C2 (A.C.E., Sabre). mc








Núna stendur hjólið niðri í bílskúr allt í pörtum því ég er að taka það vel í gegn á meðan ekki er færð til að hjóla.



Það sem ég er aðalega að gera er að þrífa það almennilega og gera við smárispur, ryðbletti og því um líkt. Þar sem maður hefur NÓGAN tíma þá þríf ég alla skrúfganga sem ég losa og smyr allar skrúfur. (Já mér á til að leiðast stundum).Whistle

En ég er einnig að bæta við töskum:


Ég reif líka alla body-hluti af hjólinu og ætla annaðhvort að massa þá vel upp eða leita eftir góðum díl á að sprauta þá í einhverjum aðeins líflegri lit. Hjólið er nefnilega með mjög "flötum" svörtum lit. Langar í einhverskonar "metallic" lit, t.d. mjög dökkbláan eða jafnvel rauðan. Ég þekki einhverja sem gætu reddað því fyrir mig en ykkur er auðvitað velkomið að mæla með einhverjum ódýrum og góðum.Wink




Svona í gamni þá tók ég hljóðkútana af hjólinu og setti litla stúta sem ég fann ódýrt í N1 uppi á Höfða.











Það er reyndar alveg á mörkunum að maður þori að keyra hjólið svona því hávaðinn er rosalegur og hjólið er farið að spúa eldi......

Því miður er soldið erfitt að ná eldinum almennilega á mynd en ég náði þó einhverju á myndband.

http://www.youtube.com/watch?v=6IG2UVZBiJY
Reyndar kemur þónokkuð meiri eldur en sést þarna.

En ég held að þetta ætti að nægja sem fyrsta kynning. Segið mér nú hvað ykkur finnst.........



Honda Shadow A.C.E. VT1100C2
Sponsor
Xodus ehf
gsxr2000 Offline
#2 Posted : 10. desember 2008 20:27:03(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 24.3.2008(UTC)
Posts: 189
Location: í rottu holu

já sæll geðveigt hjól og velkominn á spjalliðKlapp klapp
hefuru einhvað í mig ??
GULAG Offline
#3 Posted : 10. desember 2008 20:33:14(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.293
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
flott hjól, velkominn á spjallið !!

spurning hvort gangurinn truflist eitthvað hjá þér við stútana?

arniph hérna á spjallinu er málari,, getur prófa að senda honum PM..
Support 182144118
Ronni Offline
#4 Posted : 10. desember 2008 20:51:11(UTC)
Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 19.3.2007(UTC)
Posts: 714
Man

Sæll og velkominn.

Allir velkomnir hérna. Racer eða ekki racer !

Þetta er spjall fyrir "alla" sem hafa áhuga á hjólum og hjólamenningu.
CBR1000RR Offline
#5 Posted : 10. desember 2008 21:05:22(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 5.7.2007(UTC)
Posts: 758
Man
Location: hér og þar

Töff hjól velkominn á spjallið. ThumbsUp
PuNkY Offline
#6 Posted : 10. desember 2008 21:14:37(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 13.6.2008(UTC)
Posts: 322
Woman
Location: Suðurnes

Töff gripur, vertu velkominn á spjallið Hörður Klapp klapp
I´m not the devil, the horns are just to keep my halo upstraight
Gix1078 Offline
#7 Posted : 11. desember 2008 01:27:44(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 3.634
Man
Location: útlönd

Velkominn gaur... ThumbsUp
if you don´t like who i am, or what i do, you can just fuck off.
Kidlingur Offline
#8 Posted : 11. desember 2008 01:50:47(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 13.4.2008(UTC)
Posts: 415
Location: hér og þar

Flott hjól fannst einmitt að ég hafi séð það á live2cruize
Suzuki Hayabusa 2004
krimmi Offline
#9 Posted : 11. desember 2008 12:31:27(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 14.7.2007(UTC)
Posts: 207
Man
Location: Blönduós

Velkominn á þetta ruddalega spjall

kveðja
mc

Árni B Einarsson
krimmi75@simnet.is
894-0816
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook