Æji, ekki einusinni enn
Mér finnst þetta bara fínn húmor sem þessi þráður byrjaði á. Alls ekki out of line.
Er þetta ekki það sem við þurfum á þessum síðustu og verstu, smá bros.
Ef einhverjir Sniglar lesa þetta og taka þetta illa upp þá eru þeir eitthvað að misskilja þetta.
Hvað varðar hagsmunabaráttuna þá er hún auðvitað bara grátleg. Það nennir enginn að gera neitt. Punktur. Þarf ekkert að ræða það neitt frekar. Sniglar börðust fyrir því síðasta sumar að láta afnema hlífðarfatnaðar skylduna úr lögum. Það er barátta gegn lögum sem þeir börðust sjálfir fyrir að koma á fyrir 8 árum síðan
Í mínum huga segir það allt um "Hagsmunasamtökin Snigla" sem segja þarf.
Starfsmenn Samgönguráðuneytis og Umferðarstofu eru fyrir löngu búnir að sjá í gegnum það að Sniglar eru ekki talsmenn allra mótorhjólamanna. Þessvegna hafa þeir einnig sem betur fer samband við t.d. Rudda, HSL og aðra klúbba ef það stendur til að gera breytingar á lögum og biðja um álit eða þegar það þarf að funda vegna einhverra vandamála. Það voru t.d. fulltrúar frá flestum stærri klúbbunum boðaðir á fundi hjá US í fyrra vegna umræðu um hraðakstur.
Mér finnst bara frábært ef fólk í mismunandi mótorhjólaklúbbum stígur fram og berst fyrir hagsmunum okkar. Það er alveg sama hvaðan gott kemur. Á meðan við eigum engin regnhlífarsamtök sem sátt er um, þá er þetta bara ágætis fyrirkomulag. Ef einhver hefur áhuga á einhverju og það meikar sens þá er það bara Go for it.
En það er af og frá að Sniglar séu ráðandi afl lengur í hagsmunabaráttu okkar líkt og þeir voru. Og það vita það allir. Þeir eru bara orðnir einn af klúbbunum í flórunni og það væri ágætt ef þeir bara viðurkenndu það og hættu í þessum hlutverkaleik. Fréttin sem er á forsíðu snigla.is núna er t.d. alveg grátlegt dæmi um það hvað fólk í stjórn Snigla er hörundssárt og fast í þessu gamla fari að halda því fram Sniglar séu bestir og stærstir. Að þeir séu "Hagsmunasamtök allra mótorhjólamanna". Það verður aldrei friður á meðan stjórn Snigla heldur sig við þetta viðhorf. Svo mikið er víst.