Fimmtudagskvöldið, 10 júlí næstkomandi verður haldin Road-Race æfing á Rally Cross brautinni við Krísuvíkurveg og hefst æfingin með mætingu kl 19:30.
Þátttökugjald er kr. 1.000,- og á að greiðast á staðnum með pening.
Athugið, Rally Cross brautin er aðeins tæpur kílómetri á lengd, en malbikuð allan hringinn. Við prófuðum nokkur um daginn að aka brautina á Race hjólum og það verður að segjast að eftir nokkra hringi fór þetta að taka vel í, það eru mjög krappar beygjur þarna, en einnig nokkrar langar og skemmtilegar.
Við hvetjum sem flesta til að mæta á fimmtudaginn, nota brautina sem æfingasvæði, æfa sig í low-speed beygjum og bremsum ofl. á öruggu svæði.
Stjórn RR-AÍH.
PS. Þetta er ekki Race - Keppni eða neitt í þeim dúr. Bara gott tækifæri til að æfa sig og bæta getuna.