Jæja mér tókst að bræða úr cylendrakittinu eða stimplinum (er ekki ennþá búinn að opna mótorinn)
Fór til Þingvalla og til Baka og tókum bensín í mosó og fórum svo allann hvalfjörðinn. Síðan þegar við vorum næstum komnir til Akranes þá læstist afturdekkið og hjólið fór ekki aftur í gang þó við tókum fullt af stoppum á leiðinni útaf því ég veit að 2 stroke er ekki gert fyrir langkeyrslu og ekki heldur hendurnar á mér í svona kulda

. Mótorinn og felgurnar alveg grútskítugar eftir þessa ferð. Var fint veður alla leiðina til Þingvalla og til baka. Síðan í hvalfirðinum kom hellidemba. Við Akranes var komið smá Haglél
En ég held að ástæðan fyrir úrbræðslunni er að Tvígengistankurinn blandar fyrir 50ccm en ekki 70ccm þannig það þarf að blanda líka í tankinn 10ml af 2-stroke olíu á móti hverjum 1 l. af bensini

.
Sem ég gerði ekki og þannig eyðilagðist þetta.
Ætla um helgina þegar ég hef tima og pláss að opna mótorinn og tjekka hvort að stimpillinn var það eina sem fór.
Þá á ég auka stimpil og get farið strax að hjóla. Ég ætla bara rétt að vona að sveifaráslegurnar og séu ekki farnar því það er mikil vinna

.
En já svona er að eiga skellinöðru
Danny The Dog attached the following image(s):
Honda CRF 250 R 2008
Yamaha TZR 70 2007