í eins einföldu máli og hægt er, hinir leiðrétta mig svo þar sem ég fer með rangt mál, eða bæta við það sem uppá vantar.
Innspýtingin vinnur eftir fyrirfram ákveðnum forsendum, þær eru settar upp sem einskonar ein ríkisstilling á öll hjól af þeirri gerð sem notar hana.
Það er ekki alltaf þannig að hjólið skili mestu afli þannig, og ekki hægt að breyta ríkisblöndunni.
Þar kemur powercommanderinn til sögunnar, með honum er hægt að fínstilla blönduna á hjólinu, og þar með ná því afli út sem hjólið bíður uppá.
Um leið og maður gerir breytingar á hjólinu, nýja kúta etc, þá fara þarfir hjólsins yfirleitt lengra frá ríkisblöndunni og hlutfallslega meira fæst úr notkun PC.
PC er líka notaður til að bæta ríkisblönduna á óbreyttum hjólum ef það er með gangtruflanir frá verksmiðjunni, fjöldi tegunda er með lélega ríkisblöndu og breytast mikið með powercommander.
Bæn mín til Frikkans: " PRRRUMMMPP!"