Ef að það á að nota spíssa/loftloka þá þarf STÓRA loftdælu til að halda miklum yfirþrýsting til að loftlokinn sé skilvirkur, ef að þú ert að spá í að hafa loftlokann það stórann að það sé hægt að nota andrúmsloftsþrýsting er hann svo stór að það þarf að hafa smurkerfi í honum og hann yrði einnig mjög orkufrekur og stór og þá er spurning hvort að það sé hægt að koma honum fyrir með þeim hætti að það er hægt að halda hárri þjöppu en samt það langt frá að hann yrði ekki eins háður hita frá brunarými....Það eru til rotary ventlar en þeir mechanískir.
Renault voru fyrstir til að koma með Phneumatic ventlakerfið og þeir gerðu tilraunir með að hafa ventlana rafstýrða, það er að segja hafa rafloka í stað ventlastýringa, tæknin í dag leyfði ekki nógu smáan búnað til að hægt væri að koma fyrir og lokarnir voru mjög orkufrekir vegna þess snúningshraða sem að þeir þurftu að vinna á og frestaði Renault þessum tilætlunum í F1
Þetta er allt spurning um budget, því þetta þarf allt að seljast.
Fyrir c.a. 3-4 árum var ég á námskeiði/fyrirlestri um innsprautunarkerfi mótorhjóla og þar var rætt um innsprautunarkerfi motokross hjóla og kostnað vegna þess.
Honda gaf það út að það kostaði 8 dollara að smíða blöndung en 38 dollara að smíða innsprautunarkerfi og því ætluðu þeir að fresta því að koma með það á markað þangað til 2008.
BMW S1000RR