Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

Ekki sannað að „bumbuslagur" hafi leitt til slyss
GULAG Offline
#1 Posted : 8. nóvember 2007 14:56:29(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.293
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
það er svo margt sem manni langar að skrifa eftir að hafa lesið þetta, læt bara fréttina duga Löggan

mbl.is wrote:

Innlent | mbl.is | 8.11.2007 | 14:22
Héraðsdómur Suðurlands hefur hafnað kröfu konu, sem datt á stétt utan við hótel Geysi og úlnliðsbrotnaði. Taldi konan, að ástæðan fyrir því að hún féll hafi verið sú, að tveir menn voru í svonefndum bumbuslag utan við hótelið en sá leikur fólst í því að reka bumbur sínar hvor í annan.

Konan krafði mennina um 16 milljónir króna í bætur en dómurinn hafnaði því og taldi ekki sannað, að tjón konunnar yrði rakið til athafna mannanna.

Slysið, sem málið reis út af, varð í apríl 2003 á árshátíð, sem þar var haldin. Í dómnum segir, að tveir hátíðargestir hafi ákveðið að bregða á leik og fara í svokallaðan bumbuslag sem hafi falist í því að þeir hafi rekið bumbur sínar hvor í annan. Hafi þeir með þessu nánast verið að kasta kveðju hvor á annan. Hafi þeir rekið bumbur sínar saman í tvö til þrjú skipti.

Mennirnir tveir sögðust ekki hafa tekið eftir konunni fyrr en þeir sáu hana liggjandi í stéttinni og ekki heldur orðið þess varir að annar hvor þeirra hafi rekist í konuna.

Konan sagðist hins vegar hafa staðið nálægt innganginum og verið þar í samræðum við annan árshátíðargest. Hún hafi allt í einu hafa fundið þungt högg dynja á sér og hún skollið í jörðina og borið fyrir sig vinstri handlegginn í fallinu með þeim afleiðingum að úlnliðurinn brotnaði.

Samkvæmt örorkumati hlaut konan 85% varanlega örorku og 12% varanlegan miska vegna áverkanna.

Í dómnum kemur fram, að mennirnir tveir voru lögreglumenn en árshátíðin var á vegum starfsmanna sýslumannsins á Selfossi. Mennirnir heimsóttu báðir konuna daginn eftir slysið, báðu hana afsökunar og gáfu henni blómvönd. Þá hafði annar frumkvæði að því að konan fékk styrk vegna slyssins úr félagssjóði lögreglumanna í Árnessýslu. Konan taldi þetta gefa tilefni til að draga þá ályktun að mennirnir hafi átt sök á því hvernig fór en því var héraðsdómur ósammála.
Support 182144118
Sponsor
Xodus ehf
Hemi Offline
#2 Posted : 8. nóvember 2007 15:06:05(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 4.6.2007(UTC)
Posts: 107
Man
Location: in the middle of nowhere

held þeir hafi nú bara verið að vorkenna kellinguni, hún hefur hins vegar ákveðið að grípa handleggin þegar henni var réttur puttin
Gix1078 Offline
#3 Posted : 8. nóvember 2007 19:43:45(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 3.634
Man
Location: útlönd

Er ekki spurning um að Lögreglan fari að endurmeta það hvort kleinuhringir séu kjarngóð fæða??
Ef þeir eru farnir að slasa fólk með belgnum á sér.
if you don´t like who i am, or what i do, you can just fuck off.
Vegalaus Offline
#4 Posted : 8. nóvember 2007 20:54:29(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 4.7.2007(UTC)
Posts: 497
Location: flying below the radar

Athyglisvert, löggan elskar líka uppáhaldsleik busanna sem fá ekki dömu til að dansa við á skóladansleikjunum....

Ætli þetta bendi til framtíðarvinnu krakkana ? ? ?
Bæn mín til Frikkans: " PRRRUMMMPP!"
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook