Þegar skipt var um kút eða pústkerfi á blöndungshjólum þurfti að breyta eldsneytisblöndunni til að vinnsla hjólsins versnaði ekki og auk vegna hættu á ofhitnun.
Þegar aukið er flæði að eða frá vél þá eykst loftflæði í gegnum vélina og þarf því að bæta við eldsneyti, í blöndungshjólum jókst eldsneytisflæðið aðeins vegna þess að þegar loft fór hraðar um blöndungs þá sogaðist meira eldsneyti upp í soggreinina vegna aukins lofthraða og sogs frá vél, samt reyndist í flestum tilfellum nauðsynlegt að stilla hjólið eftir pústbreytingar.
Í dag eru flest hjól komin með eldsneytisinnsprautun sem er stjórnað af vélartölvu hjólsins sem skammtar eldsneyti eftir inngjafarstöðu, lofthita, og snúningi vélar (smá einföldun). Þegar breytt er pústkerfi eða einhverjum öðrum þáttum vélar, þá ÞARF að breyta skammtastærð eldsneytis frá vélartölvu af þeirri einföldu ástæðu að aukið loftflæði og sog vélar dregur ekki meira eldsneyti úr eldsneytisspíssum.
BMW S1000RR