það er vídeó hérna á síðunni þar sem náungi einhversstaðar í Asíu er að kenna hvernig á að veifa öðrum hjólamönnum...
Það kom punktur í þessu videoi sem ég er mikið búinn að hugsa um, en það er þegar það kemur bíll aftan að hjólinu og gaurinn segir að þegar hann sér svona stresslið á bílum, þá bara hleypi hann þeim framúr..
Þetta er eitthvað sem flestum finnst kannski ekkert stórmál, en það er það samt !!!
Það er alveg merkilegt þegar maður er á hjóli eða kraftmiklum bíl, þá breytast ökumenn í kringum mann í kappasktursökumenn, reyna að fá mann til að spyrna, keyra hratt osfrv.
Oft er maður ekkert í stuði í þessháttar og þá er ráð að hleypa þessu liði framúr sér..
líka þegar einhver límir sig í rassgatið á manni, einfaldlega að hægja bara á sér og hleypa þessu liði framúr.. oft þegar einhver límir sig svona í rassinn á manni, og maður gefur í smá kafla til að losna við þennan rassapotara, þá eru þeir komnir aftur eftir nokkrar sekúndur í fjósið á manni aftur, sumir eru einfladlega bara vangefnir í höfðinu og gera sér enga grein fyrir hvað þetta er hættulegt..
anyways,, bara pæling..
Support 182144118