Jæja, er ekki ráð að fara að endurvekja þetta spjall okkar eitthvað, láta ekki fésbókina stela öllu netspjalli..
Aníveis, ég er að smíða 1 stk Hayabusa Turbo, gamla góða Búsan mín.. 2004 árgerð.
Ég var búinn að tíma inn ásana, setja extra stutta Yoshi kúta undir, Power commander 5, með Auto tune, og datt svo niður á blandað turbokit á ebay frænda sem ég stóðst ekki..
Settið er:
Mitsubishi Túrbína, breytt af Hahn's motorsport.
Flækjur, Plenum, Fuel regulator og bensíndæla frá Mr. Turbo.
Ég fékk kittið ekki með öllu, kemur af kvartmíluhjóli í ameríkuhrepp sem var að skila 350 hrossum í afturhjól,
ég er nú búinn að versla það sem vantaði, trúið mér, það er slatti sem þarf að versla, allskyns nipplar, lokar, slöngur ofl ofl..
Er núna þessa stundina búinn að koma túrbínunni undir, og er að smíða rörið frá bínu upp að vél, og er í rólegheitum að koma öllum nipplum, olíuslöngum ofl fyrir.. þetta er hellings púsl.. en man o man.. hvað þetta er gaman.
Ég ætla að nota áfram Power Comannderinn 5, og leyfi Auto Tune að vera í áfram, ég neyðist til að láta hjólið á Dynobekk... (er Nitró ennþa með bekkinn? veit einhver hvað það kostar að láta mappa hjól þar?)
og svo leyfi ég Auto Tune'inu að fylgjast með..
Ég stefni á að blása 8 pundum, sem er í lagi á óbreyttan mótor á dælubensíni (92oct) þetta setup á að skila um 250 hestöflum í afturhjol, hugsanlega eitthvað örlítið meira.. kemur í ljós.. ;)
Pósta hingað inn framförunum...
GULAG attached the following image(s):
Support 182144118