Sælir
Ég er að velta fyrir mér allskonar hlutum í sambandi við stélið hjá mér.
Er á 02 gsxr 600 og grindin sem sætið og farþegasætið eru á er skökk, ekki mikið en það sést ef horft er eftir því.
Hefur gengið erfiðlega að finna þessa grind, og lagðist út frá því í pælingar um að smíða nýja grind sjálfur og breyta í leiðinni stélinu.
Spurningin er því, er ég að breyta aksturseiginleikum hjólsins á einhvern hátt með því að gera þetta, þ.e. ef grindin er annaðhvort þyngri eða léttari en orginal, og ef hún er styttri, þ.e. með öðrum plöstum líka?
kv.
Andri J