Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

Hópferð á alvöru Braut!
runarpet Offline
#1 Posted : 23. október 2010 20:46:23(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Okkur langar að smala nokkrum saman í smá Track-hópferð og hef ég aðeins verið að vinna í því undan farið og núna er komið svo að við getum byrjað að plana þetta og bóka.

Stefnan er sett á Almeria brautina á Spáni, nánar tiltekið suður Spáni. Brautin er inn í eyðimörk á milli mjög hárra fjallagarða og því alveg gjörið veðurfar og er mér sagt að þetta sé þurrasti staður í gjörvalli Evrópu og rignir það að meðaltali aðeins 3-4 daga á ári. Þetta er svæðið þar sem spaghetti vestrarnir voru myndaðir.

Youtube myndband hérna

Almeria brautin er notuð af flestum WSB og Moto2 liðum, til þess að prufa tæki og tól, get ég t.d. staðfest það að þegar ég koma þarna í Desember 2009 var BWM Superbike liði að pakka saman og fara, um þá sömu helgi var MV Agusta að prufa bæði nýja 2010 F4 hjólið og með F3 prototýpu hjólið sitt í prufuakstri, svo þegar við vorum að pakka saman á sunnudagskvöldinu, voru öll Moto2 liðin að koma á svæðið að prufa tæki og tól. Það má lesa aðeins um þessa ferð úr gömlu bloggi frá mér hérna. Þannig að þetta er hreint útsagt frábær braut, með 14 beygjum (9 hægri/ 5 vinstri), 10-12metra breið, 900m löngum (+230km/klst) beinum kafla, 1 chicane beygja, tvær mjög skemmtilegar blind beygjur og einni allra skemmtilegustu vinstri beygju sem ég hef keyrt!!! Sagan segir að íslendingur hafi náð að setja elbow-down í henni???


Þetta er því tilvalin braut fyrir bæði byrjendur sem og lengra komna, jafnt konur og karlar, (já stelpur, það eru alltaf svona 10 stelpur í þessum ferðum) svo mæli ég með að fólki taki einn dag í Rider Clinic/kennslu og það frá alvöru ökumönnum á borð við Steve Plater, Simon Crafar og Niall Mackenzie. Hver kennari hefur aðeins 4 í einu og því fá allir næga athygli.

Ferðin sem umræðir er farin með Focused Events og verður farin á milli 22.- 27. Feb 2011 og af þeim tíma er keyrt í fjóra daga (23-26. Feb)] þessi tímasetning hentar mjög vel upp á flugsamgöngur t.d. er mjög hagstætt að fluga á þessum tíma bæði til London Gatwick og Almeria/Murcia á Spáni og ekki skemmir veðrið fyrir, en gera má ráð fyrir Sól og 18-23 stiga hita á þessum árstíma, já og svo getum við tekið kvöld flug á sunnudeginum heim frá London, sem spara okkur nætur gistingu í London og fólk getur því mætt til vinnu strax á mánudeginum.


Vanalega kostar svona fjögra daga trackday £465 + leiga á hjóli (4 X £170) + dekkjagangur (£200-£300) = samtals £1145+dekk(200-300), svo þarf að gera ráð fyrir bensíni fyrir svona 35-55 evrum.

Ég hef fengið Kevin Healy eigandi Focused Events til þess að setja saman (Klingon) tilboðspakka fyrir okkur og hljóðar hann upp á £965 fyrir fjóra daga á braut, 4 nætur í gistingu á fínu hóteli, leigu á hjólinu allan tímann og einum dekkjaumgang sem gerir þetta um £400-500 afsláttur!!! Ef fólk þarf svo að kaupa aukadekkjagang þarf að greiða fyrir það sér og sama á við um Rider Clinic/kennslu, já og svo þarf fólk að borga fyrir uppihald líka.

Þetta eru hjólin sem eru í boði= R6, ZX 6R, GSX-R 600 og Ducati 848(kostar aðeins meira) og allt eru þetta 2010 árgerðir!

Ég hef reiknað það lauslega hvað svona ferð gæti kostað í heildina, en með því að vera tímanlega að þessu, þá má spara mikinn pening á flugi og sameiginlegum bílaleigubíl
Smá reiknidæmi: (nota 180kr á pundið og 155kr á evruna)

Svona gæti þetta orðið (allt sirka verð)

Icelandexpress 39.900 núna en með því að kaupa „jólagjafakort" fer þetta niður í 26.900(tilvalin að biðja um þetta í jólagjöf)
Easyjet £130-180 = sirka 32.000 (með tösku + auka tösku og speedingbording)(hægt að spar £37 með því að sleppa sporting goods tösku)
Trackday, hótel, leiguhjól og dekk £965 = 173700
auka dekk £200-270 = 36.000 - 48.600 (fæstir sem þurfa það)
Rider Clinic/kennsla £149 = 26800
bensín €35-55 = 5500-8500
bílaleiga €35 = 5500

svona ferð gæti kostað frá kr 235.000 - 320.000, veltur allt á því hvernig fólk borgar fyrir flugið, tekur kennslu með, þarf auka dekkjagang(fæstir sem þurfa það) og hvað það fer með í bensín.
Ekki þarf að borga þetta allt í einu, fyrst þarf að borga £200 í staðfestingargjald (ekki endurgreiðanlegt!) svo er hægt að bóka flug með Easyjet og ekki þarf að kaupa jólapakka Icelandexpress fyrr en 24. des(eða fyrr) en með þessu má brytja fílinn niður og borða hann bita fyrir bita

Í boði eru 10 sæti og nú þegar eru 3-4 sæti bókuð!

Allir velkomnir með og hægt er að fá allar frekari upplýsingar hjá mér

Svona ferð er ógleymanlega og allir læra eitthvað nýtt og ná að bæta sig sem ökumann, já og kynnast fullt af skemmtilegu fólki

Kv
Rúnar P.
s. 697-4881
info@motorhjol.is
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
Sponsor
Xodus ehf
runarpet Offline
#2 Posted : 23. október 2010 20:52:02(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
P.s. endilega látið mig vita ef þið viljið taka 1-2 daga í offroad enduro í sömu ferð

hægt að sjá allt um það hér
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
Mrs. Yu Offline
#3 Posted : 23. október 2010 21:09:32(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 26.1.2007(UTC)
Posts: 1.303
Woman

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Hvernig er þá með gistingu þessar tvær nætur sem eftir standa?

P.s. Dibs á tvö sæti hérna.
runarpet Offline
#4 Posted : 23. október 2010 21:27:00(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Fuck... ég var búinn að pósta svari!!! arg garg

allavega.. ég er búinn að laga þetta Smile

það eru 4 nætur í þessu verði, á mjög fínu hóteli!!! í bænum Mojacar

yfirleit hefur svo auka nóttin (laug/sunn) verið frí-keypis, því hótelið er lítið notað á þessum tíma árs og vilja fá fólk til þess að eyða í mat og í barinn

svo er svaðalega flottur skemmtistaður þarna í göngufæri, þar sem koma heilu rúturnar með fólk á laugardögum
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
disso Offline
#5 Posted : 24. október 2010 15:15:39(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar
Joined: 21.1.2007(UTC)
Posts: 680
Man
Location: kópavogi sími 866-0400

Má þá ekki reykna með að með uppihaldi og öðrum kostnaði að þetta sé ca 400 þús á kjaft með öllu? þ.e.a.s. ef maður tekur ekki aukadekkjagang.
runarpet Offline
#6 Posted : 24. október 2010 22:36:42(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
flott að fá nokkrar spurningar ThumbsUp

Ég er búinn að fara í nokkrar ferðir á árinu og út frá því hef ég lært heilmikið í sambandi við verð og kostnað

ég mundi reikna þetta svona og ég skal reyna að vera eins nákvæmur og ég get ;)

Best er að kaupa flugið með Icelandexpress með því að kaupa jólapakka frá þeim 25900 eða 26900, man ekki alveg og því reikna ég með hærra verðinu

svo sýnis mér við verðum að taka Monarch frá Gatwick niður til Alicante og svo EasyJet frá Murcia aftur til Gatwick(betri flugvöllur)

Monarch kostar sirka 75 pund = 13500 og EasyJet er sirka 93 pund = 16500, í báðum þessum flugum er miðast við eina tösku í handfarangur og eina 20kg tösku, það er svo hægt að kaupa auka "sporting goods" tösku sem má vera í á milli 16-20kg og það kostar hjá Monarch 18,5 pund og 25 pund hjá Easyjet, ég mundi persónulega sleppa því, maður þarf ekki svo mikið af farangri t.d. hjá Easyjet má handfarangurstaskan vera eina þung og þú vilt bara þeim lengi sem þú nærð að lyfta henni upp í hólfið og að hún sé ekki stærri en eitthvað ákveðið stærð (man ekki stærð en hún er stór!)

svo má gera ráð fyrir bílaleigubíl €35 á kjaft og bensín/dísel €20 á kjaft, sirka 8500

næst er það trackið, hjólið og gistingin sem 965pund eða 173700

svo þarf fólk gera ráð fyrir bensín á hjólið €35-55, segjum annar 8500

persónulega mæli ég með að fólk taki sér kennslu í einn dag! sem gera 149pund eða 27000

svo eru það auka dekk £200-270 = 36.000 - 48.600 (fæstir sem þurfa það)

Allavega mundi ég horfa á þetta svona

kr 26900 flug til London
kr 13500 flug til Spánar
kr 16500 Flug aftur til London
kr 173700 Track-time, leiga á hjóli, dekk og gisting
kr 8500 bílaleigubíll og bensín/dísel
kr 8500 bensín á hjólið

samtals 247600-250000 + 50-60þús í uppihald

þetta er auðvita ekki verslunarferð, nema þá að fólk ætli að eyða peningum í rándýra fríhöfn og eitthvað bull og því held ég að þú sleppir alveg með 50-60þús í mat, því morgun matur er innfalin í gistingunni

svo getur fólk auðvita bætt við sig í þessari ferð
t.d.
Rider Clinic/kennslu 150 pund = 27000
auka dekkjum £200-270 = 36.000 - 48.600
tekið auka farangur með sér 18,5+25 pund = sirka 7500


P.s. Ekki þarf að borga þetta allt í einu, fyrst þarf að borga £200 í staðfestingargjald (ekki endurgreiðanlegt!) svo er hægt að bóka flug með Monarch og Easyjet í nóv/des og ekki þarf að kaupa jólapakka Icelandexpress fyrr en 24. des(eða fyrr), svo greiðist restin af ferðinni 3-4 vikum fyrir brotför

það ætti að gefa fólki tíma til þessa að borga inn á þetta smátt og smátt, já og safna peningum ;)
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
Toti Offline
#7 Posted : 25. október 2010 17:04:58(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 16.5.2008(UTC)
Posts: 144
Man
Location: 210 hjá ríka fólkinu

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Nú spyr ég kannski eins og bjáni... hvað með tryggingar ef maður skyldi nú fara fram úr sjálfum sér?
Kv. Tóti

2007 Yamaha R1
runarpet Offline
#8 Posted : 25. október 2010 18:47:40(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Það eru engar bjánalegar spurningar í kringum þetta og hérna koma svör við nokkrum spurningum sem ég hef verið að fá frá fólki Smile

í sambandi við tryggingar og galla:

Þá þarf að reiða fram 500pund í tryggingu (kort/peningar) og svo færðu það aftur ef ekkert gerist, ef þú t.d. dettur og brýtur bara handfang og bremsupedala, þá greiður þú bara fyrir það, þetta er svona svipað og að taka bílaleigubíl.

Focused Events kaupir auðvita mikið af dótið og fær góðan afslátt á öllum varahlutum og þann afslátt færir hann yfir til viðskiptavina, þannig borgar fólk alltaf sem minnst ef eitthvað gerist

Fólk tekur með sinn eigin galla og notar hann úti, 1pc eða 2pc breytir engu, bakbrynju, hjálm, hanska og skó

og í sambandi við byrjendur, þá er skipt í 3 hópa (byrjendur 1. hóp) og keyrir allaf sá hópur saman. Núna er byrjað að nota tímatökubúnað á öll hjól og þeir sem bæta sig eru færðir upp um hóp og þeir sem hafa skráð sig í hóp 2-3 og keyra svo bara hægt eru færðir niður um hóp, þetta fyrirkomulega hefur verið að virka vel og tekur burt flestar umferðastíflur sem hafa verið að myndast.

Fólk þarf svolítið að finna það hjá sjálfum sér, hvort það þori í svona braut, þetta er auðvita og verður alltaf pínu spenna, sem gerir þetta svo skemmtilegt! en þeir sem leggja í þetta, sjá aldrei eftir því og verða mun betri í umferðinni fyrir vikið!

Eins og ég hef áður sagt, þá er Almeria alveg tilvalin braut fyrir byrjendur, stelpur, stráka, konur og karla, já og líka fyrir lengra komna ;)

p.s. þá þarf að hafa með sér sjúkraskírteini (græna kortið) og svo viðbótar frístundartryggingu sem segir að þú megir keyra í lokaðri braut í evrópu, sumir fá þetta bara frítt með heimilstryggingu, aðrir borga 1500-5000) fyrir það

vonandi að þetta svari flestu

kv
Rúnar p.
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
eValdís Offline
#9 Posted : 26. október 2010 21:31:54(UTC)

Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.8.2008(UTC)
Posts: 30
Location: rvk

Takk kærlega fyrir svörin Rúnar.

Þetta hljómar eiginlega of vel til þess að sleppa þessu....
Áttu laus tvö pláss fyrir okkur Tóta?

Kv. Valdís
Kawasaki ZX6R - 2006
runarpet Offline
#10 Posted : 27. október 2010 16:17:21(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Lítið mál að koma ykkur fyrir

***Varúð.. Trackdays eru massíft ávanabindandi!!!*** Wink



Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
eValdís Offline
#11 Posted : 28. október 2010 20:34:13(UTC)

Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.8.2008(UTC)
Posts: 30
Location: rvk

Haha, já það er það sem ég óttast mest Smile

Eru margir búnir að bóka sig?
Kawasaki ZX6R - 2006
runarpet Offline
#12 Posted : 29. október 2010 00:45:40(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)

***Uppfært***

8 komnir og 2 ætla að láta mig vita strax eftir helgi
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
Mrs. Yu Offline
#13 Posted : 30. október 2010 22:43:27(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 26.1.2007(UTC)
Posts: 1.303
Woman

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Smá vídeó fyrir þá sem hafa áhuga á tips frá Rossi. Smile
http://www.ebike-ridingt...layer.swf?file=rossi.flv
runarpet Offline
#14 Posted : 7. nóvember 2010 14:32:30(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Var að skella inn á bloggið hjá mér, nýlegu myndbandi með Randy Mamola fara hringinn á Almeria (sjá hér)
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
runarpet Offline
#15 Posted : 8. nóvember 2010 21:13:27(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Mæli með að þeir sem ætla með í ferðina takið einn dag í kennslu hjá Simon Crafar eða Steve Plater, ég hef fengið að kynnast Simon aðeins betur og þetta er því líkur snillingur!

allavega þá langaði að setja myndband sem ég fann á YouTube þar sem Simon er með einhvern á R6 og tekur nokkra hringi á Motorland Aragon brautinni, fylgist vel með og sjáið hvernig Simon reisir sig upp eða hendir hnefanum niður á þeim stað sem hann vill að viðkomandi bremsi og svo bendir hann niður á þann stað þar sem hann vill að viðkomandi sé staðsettur í miðbeyju

Motorland Aragon

ég fæ flashback þegar ég horfi á þetta og langar aftur!!! Crybaby
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
runarpet Offline
#16 Posted : 10. nóvember 2010 02:05:58(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Svona var veðrið í Febrúar 2010
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
bjaddni Offline
#17 Posted : 5. desember 2010 18:45:21(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 11.6.2010(UTC)
Posts: 56
Location: KOP

suss hvað maður væri til í þetta!!!
runarpet Offline
#18 Posted : 9. desember 2010 21:10:56(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Nú þegar er uppselt í ferðina hjá Focused events og 12 búnir að skrá sig í ferðina með okkur og því pláss fyrir 3 í viðbót í nokkra daga, annars þarf ég að láta þessi pláss frá mér
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
runarpet Offline
#19 Posted : 20. janúar 2011 15:33:38(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Það eru hugsanlegt að tveir sem ætluðu með í ferðina, komist ekki með? þannig að ég gæti verið með 2 sæti laus í þessa annars vangefnu ferð Smile

það þarf samt að hafa hraðar hendur, því ég hef ekki nema 4-6 daga til þess að klára þetta!
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
Orlandi10 Offline
#20 Posted : 20. janúar 2011 20:59:04(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 4.3.2009(UTC)
Posts: 173
Location: Selfoss

Sælir, ekki freista mín...
exx Offline
#21 Posted : 21. janúar 2011 12:59:47(UTC)

Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 12.3.2010(UTC)
Posts: 29
Location: Reykjavík

Hrikalega er þetta spennandi og girnilegt :-) En ég kem með seinna :-(
Hobbitinn :-)
Kawazaki ZX10R 2006
runarpet Offline
#22 Posted : 28. febrúar 2011 14:52:51(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Iceland Stunt Team (IST)
[img]http://public.fotki.com/runarpet/almeria-2011/8k9u8541.html[/img]
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
runarpet Offline
#23 Posted : 28. febrúar 2011 14:53:22(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Iceland Stunt Team (IST)
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
Haffman Offline
#24 Posted : 28. febrúar 2011 17:40:08(UTC)
Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 20.1.2007(UTC)
Posts: 949

Góð...............
Mr.Flanker Offline
#25 Posted : 28. febrúar 2011 19:23:35(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

Þessi mynd var einmitt tekin þegar við vorum í skammarkróknum!
bjaddni Offline
#26 Posted : 28. febrúar 2011 23:45:23(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 11.6.2010(UTC)
Posts: 56
Location: KOP

jæja strákar, get ekki sagt annað en ég sé grænn af öfund, er svona að gera það upp við mig hvort maður eigi að skella sér í california superbike school þegar ég fer út í sumar Smile

gaman væri að fá smá ágrip frá því hvernig var þarna, hvað stóð uppúr, hvað mátti fara betur, tókuð þið ykkar eigin búnað með osf?
Toti Offline
#27 Posted : 1. mars 2011 10:18:54(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 16.5.2008(UTC)
Posts: 144
Man
Location: 210 hjá ríka fólkinu

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Vilt þú ekki taka það að þér Óskar að segja honum hvað Simon Crafar finnst um Superbike School Whistle

Annars fannst mér einmitt kennslan frá Simon Crafar standa upp úr og eftir það var þetta "all joy" ThumbsUp
Kv. Tóti

2007 Yamaha R1
runarpet Offline
#28 Posted : 1. mars 2011 11:13:15(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Hvað sem "félaga mínum" Simon Crafer finnst um California Superbike school, þá held ég að það eigi ekki heima hér!

annars er hægt að fara langleiðina í svona 3-4 daga Almeria ferð fyrir þann pening sem þú borgar í CSS

Það sem stendur upp úr þessari ferð er örugglega mikið drukkið, út að borða með BSB og WSB stjörnum, hjólað, hlegið og bullað!

Svo koma svona punktar eins og þegar sumir Íslendingar tóku GP style á hlutina og hópurinn endaði í skammakróknum og línan var dreginn í sandin.

miklu gúmmí slitið - við allt of mikin loftþrýsting

racehetjan stubbur mætti á svæðið og byrjaði að skamma Mrs ?? og náði henni ekki upp fyrir maga?

einn ber að ofan og hinn ber að neðan,

já og svo margt fleira, sem ég má hreinlega ekki segja frá, bara mæta í ferðirnar!!! Bling Bling
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
1 user thanked runarpet for this useful post.
Drullusokkur8 á 20.4.2011(UTC)
Toti Offline
#29 Posted : 1. mars 2011 11:24:39(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 16.5.2008(UTC)
Posts: 144
Man
Location: 210 hjá ríka fólkinu

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Fín samantekt hjá þér Rúnar headbang

... og ég skal ekki segja frá skoðunum hans Símma Rassskella

Við bíðum svo bara spennt eftir MotoPassions Dancing
Kv. Tóti

2007 Yamaha R1
Mr.Flanker Offline
#30 Posted : 1. mars 2011 14:42:27(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

LOL!! Snilldarpistill hjá þér Rúnar og algjörlega lýsandi fyrir ferðina. Það skal samt tekið fram að þetta er greinilega ritskoðuð samantekt hjá Rúnari, ferðin var miklu meira skemmtileg en þetta!!!!

Og varðandi CSS þá hef ég alltaf verið mjög fylgjandi þeim og lesið mér mikið til um hann, á báðar Twist of the Wrist bækurnar eftir Keith Code og Performance Riding eftir Andy Ibbott, á báðar TOTW bíómyndirnar og bresku þættina og hef alltaf reynt að hjóla eftir þeirra stíl. Crafar sagði það líka alveg greinilegt að ég væri með CSS stíl sem hann vildi breyta. Það var mjög erfitt og tók á en ég varð miklu hraðari með stílnum sem Crafar kenndi mér miðað við CSS stílinn. Ég á bara eftir að sjá tímana til að staðfesta það.
GULAG Offline
#31 Posted : 1. mars 2011 15:33:03(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.293
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
þetta hefur greinilega verið rosa gaman,,
maður verður að reyna að koma með næst !!!
Support 182144118
bjaddni Offline
#32 Posted : 1. mars 2011 17:12:20(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 11.6.2010(UTC)
Posts: 56
Location: KOP

Já ég mundi nú kjósa frekar að fara í svona almeria ferð en CSS, en þar sem ég verð í Virginia akkurat þegar þeir eru í Virginia international raceway, þá hefði ég ekkert á móti því að kíkja í einn dag sem eru einhver vel rúmlega 70þkr með leiguhjóli

hvernig kom þetta svo út hjá ykkur kostnaðarlega slapp einhver í hringum 300 kallinn?
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook