Sælir kæru spjallfélagar.
Ég var að fjárfesta í Hondu CBR 600 Hurricane '88. Finnst lausagangurinn og vinnslan í því vera asnaleg, það gengur lausagang frekar hratt og rokkar soldið upp og niður og vinnslan virðist vera ójöfn og höktandi. Hvern á maður að tala við til að láta fara yfir hjólið og stilla það og skoða það, einhver hérna sem kannski bíður sig fram í það fyrir lítið? Ekki hika við að senda skilaboð ;)
Svo annað, í lausagangi heyrist leiðinlegt skrölt frá pústinu, þó aðalega þegar það er kalt, og ég tek eftir þessu stundum á keyrslu líka. Fyrrverandi eigandi sagði við mig að það væri einhverskonar loki í pústinu sem skrölti í og að það væri ekkert mál að láta sjóða í þetta og laga. Er hann að bulla í mér eða er þetta einhver þekktur galli eða vesen í þessum hjólum? Gætuð kannski líka bætt inn hvar er best að láta tjékka á þessari bilun.
Virðingarfyllst,
Kristján