Ef þíð eruð að flakka um í Svíþjóð... og hjólið er leiðinlegt þá held ég að
Mark Jennings sé maðurinn til að kíkja í skúrinn til ....
Ég tók upp á því í gær að skreppa aðeins út að hjóla og prófa gpsið aðeins í leiðinni.
950km og tæpum 9 klst seinna (án efa lengsi hjólatúr sem ég hef farið á einum degi og það einn) þá skreið ég heim aftur á nýjum dekkjum - ákvað að kaupa mér ný dekk í Svíþjóð af því að veðrið var svo gott (sól og 20°c), henti Pilot Power og setti undir Metzeler Roadtec Z6 Touring dekk - fín á Autobahn
Aftur að Mark kallinum... hann tók undan, umfelgaði, ballanseraði, setti undir aftur, stillti keðju og bauðst til að stilla föðrun af því að nýju dekkin eru harðari en þau gömlu - tók ca 30 min og kostaði nánast ekki neitt.
Frekar vinalegur kall sem vissi nánast allt um mótorhjól, tekur track daga á Ducati Bim.. 999
Mynd úr skúrnum hans:

Held að kallinn sé með 20 hjól sjálfur og er að flytja inn allt í mótorhjól og sæþotur frá uk.
--------------------------
vrrruuumm@hotmail.com