Þetta er í raun sáraeinfalt.
Þú getur fengið þér þurrt kerfi sem sprautar bara Nitrous oxide inn í loftsíuboxið fyrir framan MAF (Mass Air Flow) skynjarann sem segir tölvunni að bæta við meira eldsneyti vegna kaldara og rakara lofts. Þetta er samt í raun ekki nákvæm leið til að fá rétta eldsneytisblöndu en dugar fyrir litla orkuviðbót. Það sem ber að varast er að setja ekki of mikið og -sum- hjól hafa farið í cold mode við þessar æfingar og þá flýtir tölvan kveikjunni sem er ekkert sérstaklega gott.
Blautkerfi eru yfirleitt sett beint í soggreinina fyrir neðan loftsíubox og sprauta bæði Nitrous oxide og eldsneyti. Þannig getur þú bætt við mun fleirri hestöflum en þá er gott að hafa Power Commander eða einhverja aðra tölvu til að breyta kveikjutímanum eftir því hvað mikla aflaukningu þú vilt.
BMW S1000RR