Jæja
Þá lét maður loksins verða af því að kaupa mér mitt fyrsta hjól og fyrir valinu
varð 2007 árgerð af Yamaha R1. Hjólið er þokkalega vel með farið en þónokkuð
notað og var ég að skríða yfir 18 þús. kílómetrana á rúntinum í dag.
Í heildina séð er ég nokkuð ánægður með kaupin enda hefur hjólið verið draumahjólið frá fermingarárunum (aðeins breytt útgáfa). Þó langar mig að
gera nokkrar breytingar og viðbætur við hjólið en þær eru helst útlitslegar.
1 - Fender Eliminator og innfeld stefnuljós að framan
2 - Crash-púða á hliðar og afturgaffal
3 - Svart DB gler
4 - Svört ASV handföng og fasta breytilega pedala (eða bara lita original svart)
5 - 16/47 tannhjóla kit og keðju
Eftir þetta held ég að ég verði helvíti sáttur með gripinn. Hugsa að maður fari jafnvel að mæta á RR æfingar um leið og maður er kominn með crash-kit á það


P.s. mig vantar dekk á þetta. 190/50/ZR17
P.s.s hvern á ég að tala við varðandi stillingar á dempurum? (mjög hast)
Kv. Tóti
2007 Yamaha R1