Var að skoða þessa dekkjaþræði og tók eftir því, að hér vantar alveg umfjöllun um Bridgestone BT016?
Allavega, fluttum við til landsins nokkur svona dekk vorið 2009 og líka nokkur sett í ár, annars held ég að almennt hafi fólk verið mjög ánægt með bæði grip og endingu á þessum dekkjum...
Persónulega fannst mér BT016 vera mjög skemmtilegt dekk og minnir mig að ég hafi náð um 5500-6000km á dekkjunum, reyndar var mest af þessu upp á RC braut og ekki það mikið á olíumölinni
Svo leigði ég 2010 hjól í vor sem hafði verið rétt tilkeyrt um 450km og hjólið var á svona dekki, ég náði þó að slátra því á 1. daginn og fannst mér dekkið uppfylla allt sem gott supersport-dekk á að gera
Einkunn af 10 mögulegum.
Í þurru 8,5
Í blautu 7,5
Ending 9
spurning hvað öðrum fannst?

Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins