Michelin Power ONEÉg fékk að prufa svona dekk á Almeria, síðasta vetur og líkað mjög vel við þau strax og þar sem ég fékk þau á mjög góðu verði, þá keypti ég auka gang til þess að taka með mér heim.
Upphaflega hélt ég að þessi dekk væri "Power ONE Road" en komst fljótlega að því að þessi dekk voru "Power One Competition" með (A)framdekk og (B)afturdekk.
Allavega, þá var mér drullu samam um alla endingu og langði bara að sjá og prufa hvernig svona "Gixxa" dekk kæmu út á íslenskum borgar og sveitarvegum. ég byrjaði að nota þau rétt eftir páska og gerði bara ráð fyrir því að skipta um dekk áður en ég færi á bíladaga, en viti menn, ég fór bara líka á bíladaga á þessum dekkjum og á bara þónokkuð eftir af þeim!
Ég er búinn að taka nokkra þjóðgarðshringi, El-campó brunur, mætt reglulega upp á RC braut, farið 2 eða 3 í Sílikon dalinn, ásamt nokkrum bunum á 426, farið til Akureyrar, Húsavíkur og Mývatns á þessum dekkjum.
Kominn með einhvar 5500km nú þegar á þeim
Ég ætla þó aðeins að nota þau niður að slit-merkjum og setja ný dekk undir, sýnst að ég setji aftur svona dekk á hjólið

Einkunn af 10 mögulegum.
Í þurru 10
Í blautu 5(ef bara hjólað tvisvar á þeim og það komu bara fínt út, tók reyndar lítið á þeim)
Ending 8,5
Power One síðan
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins