Höfundur svarsins á vísindavefnum hefur greinilega ekki kynnt sér starfshætti lögreglunnar, fyrir 2 árum var ég stoppaður af Blönuós lögreglunni, það var myrkur, þeir voru utan vegar (á malarplani) með öll ljós slökkt, það var ekki einusinni týra ínní bílnum. Svo birtust bláu ljósin. Ef ég hefði ekki verið nýbúinn að taka eftir appelsínugulu endurskínsröndinni og búinn að átta mig á að löggan væri þarna hefði ég sennilega flogið á hausinn þegar ljósin kviknuðu og verið tekinn á mun meiri hraða.
Ég spurði lögreglumennina hvort þetta væri löglegt, þeir gáfu þau svör að það væri ekkert sem bannaði þetta og þetta væru þær skipanir sem þeir fengu frá sínum yfirmanni, en þeir sögðu mér jafnframt að þeir sem væru eldri í hettunni neituðu að taka þátt í þessu, þeim þætti þetta ekki góð löggæsla.
Guð gefi mér elliglöp til að gleyma þeim sem ég þoldi ekki hvort sem er,
Þá gæfu að rekast á þá sem mér líkaði við,
Og sjón til að þekkja muninn
A.K.A. Addi_Sig
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR