Var að fá sendingu frá USA í gær og var að spá í því hvort ég hefði ekki borgað full há innflutningsgjöld.
Borgaði semsagt 26.000 í tolla og vsk af vörum sem ég verslaði á hjólið.
Sendingin samanstóð af Pazzo Levers, Fender Eliminator og Gel grips. Borgaði fyrir þetta 35.000 íslenskar.
Eru tollarnir virkilega það háir að ég eigi að borga rúmlega 70% ofan á upprunalegt verð. Við erum að tala um þá 50% toll sem mér finnst fáránlegt...
Hvað finnst ykkur? Er eitthvað sem ég er að gleyma að hugsa útí?
2006 ZX6R (636) 112 BHP