Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

Byrjandi í sportinu
gazzi Offline
#1 Posted : 17. maí 2010 14:35:06(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 17.5.2010(UTC)
Posts: 41
Location: GBR

Sælir,

Var að skrá mig hérna inn og er að taka mótorhjólaprófið nú 23 ára gamall og það er eitthvað sem mig hefur langað að gera í laaaangann tíma =)

Er með nokkrar spurningar varðandi þetta allt saman.

Hvaða hjól er gott að byrja á og hvaða vélarstærð mæliði með ? (er að hugsa þá um racer hjól)

Hvaða fatnað ætti ég að skoða? : Er að spá í að kaupa mér núna strax hjálm og hanska nýja og finna svo notaðann galla og skó.

Er 179-180 á hæð og 88kg þannig ef einhver veit af einhverju til sölu á góðu verði þá endilega láta mig vita Smile

Einnig ef það er eitthvað sem ykkur finnst ég þurfa að vita áður en lengra er haldið þá endilega tjáið ykkur hér. Svosem hvað ætti að skoða ef ég er að spá í kaup á hjóli osfrv...

Þakka góð svör,

Garðar ;)
Yamaha R6
Sponsor
Xodus ehf
Mr.Flanker Offline
#2 Posted : 17. maí 2010 17:16:54(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

Það er svo margt sem kemur til greina, sumir munu segja 600c, aðrir 1000cc og allt þar á milli. Sumir segja venjulegt götuhjól og aðrir segja beint í racer. Ég segi bara prófaðu sem mest og veldu það sem þér líður best á.

Ég er þeirrar skoðunnar að 1000cc racer sé ekkert hættulegri en 600cc racer, það munar oft litlu á þyngd og stærðin oft svipuð. Áseta er stundum ólík en það á líka við á milli tegunda.

Varðandi fatnað þá segi ég að kaupa leður og kaupa vandað. Prófa nóg og skoða umsagnir á netinu til að sjá hvað aðrir hafa að segja. T.d. á www.sportbiketrackgear.com. Frekar að fjárfesta í góðum fatnaði og fara í ódýrara hjól, ekki öfugt.
PuNkY Offline
#3 Posted : 17. maí 2010 19:51:47(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 13.6.2008(UTC)
Posts: 322
Woman
Location: Suðurnes

Velkomin á spjallið gazzi. Hlökkum til að sjá þig hjólandi í sumar mc

Farðu varlega og treystu eigin skynsemi....
I´m not the devil, the horns are just to keep my halo upstraight
Orlandi10 Offline
#4 Posted : 18. maí 2010 13:00:21(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 4.3.2009(UTC)
Posts: 173
Location: Selfoss

Varðandi hjól, að sjálfsögðu er ekki eins mikill kraftur í 600 eins og í 1000. En þetta er allt spurning um að fara ekki framúr sjálfum.
Minuz1 Offline
#5 Posted : 18. maí 2010 23:28:48(UTC)
Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 21.6.2007(UTC)
Posts: 192
Location: Hfj

Best fyrir þig er líklegast að fá þér 125cc racer og koma upp á brautina í sumar og æfa þig ef þú vilt læra að hjóla eins og pro.

600cc er 0.1-0.2 sek hægara upp í 100 heldur enn 1kcc hjól en u.þ.b 1-2 sek hægara upp í 200.

600cc er fínn kraftur...sérstaklega þegar þú ert að byrja...þú munnt varla trúa hröðun hjólsins ef þú hefur bara keyrt bíla og slíkt áður.

Fatnaður...
Vandaðu hjálminn
Kauptu bakbrynju sem þú getur notað í öllum göllum (sem er fest á þig)
Kauptu þér góða skó sem góðum ökklastuðningi.
Hanskar, líklegast 2 týpur, eina fyrir hot weather og aðra fyrir rigningu og þess háttar veður.

Gallinn sjálfur er trúarbrögð....
Gore tex er hlýrra og endingarbetra(ekki eitthvað sem á að vera aðalmálið við val) en leðrið.
Leðrið er líklegra til að bjarga á þér húðinni ef þú lendir á malbiki á 200km hraða, en kaldara og dýrara heldur en gore texið.

Vandaðu val þitt á fatnaði, kynntu þér rannsóknir á netinu á fatnaðinum og eða biddu um álit fólks á honum hér t.d.
Fullt af fólki sem er alltaf að detta sem getur komið með punkta ef þú biður um hjálp með vali á ákveðnum gerðum.
Ég keyri örugglega hratt
Hook1 Offline
#6 Posted : 19. maí 2010 20:03:44(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 31.7.2008(UTC)
Posts: 221
Location: RVK

Sæll og velkominn í hjóla "geðveikina". ;)
Ég tek undir allt sem er sagt hér að ofan en langar að benda þér á að besta og öruggusta leiðin til að kynnast hjólinu er að taka nokkra daga uppá brautinni í krísuvík. ( í fyrra var þess krafist að þáttakendur væri í heilgöllum eða samrenndum göllum ). ég get ekki séð á heimasíðu rr-aih hvort heilgalla sé krafist ennþá, eingöngu er talað um "Skilyrði er að vera vel gallaður og með bakbrynju". Kulda er alltaf hægt að klæða af sér ef menn versla ekki þröngan (spandex) leðugalla. ;) Ég nota goretexið í snattið, vinnu etc. en fer alltaf í leðurgallan þegar ég hef þörf fyrir að gera eitthvað geggjað.
RR-AIH
Ég er ekki alveg að fíla það að vera alltaf að missa af einhverju.
Eftir að ég fékk radarvara er ég alltaf að missa af punktum og sektarboðum....
Ekki Þitt kerfi
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook