Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

1 Maí
disso Offline
#1 Posted : 26. apríl 2010 12:29:09(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar
Joined: 21.1.2007(UTC)
Posts: 678
Man
Location: kópavogi sími 866-0400

Hvar og kl hvað er hópkeyrslan í ár?
Sponsor
Xodus ehf
Davíð Offline
#2 Posted : 26. apríl 2010 18:18:48(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 25.2.2008(UTC)
Posts: 174
Man
Location: deild 33 A

er einmitt að spá í því sama..mc
KAWASAKI ZX6R - 2007
GULAG Offline
#3 Posted : 27. apríl 2010 06:58:41(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.292
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna.

Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.







Árekstur mótorhjóls

Um kl 13:00 verður mótorhjól látið falla úr 10 metra hæð til að líkja eftir árekstri mótorhjóls við fastan hlut á um það bil 50 km/klst. Fallið ætti að sýna vel höggið við árekstur mótorhjóls.

Hjólið verður til sýnis eftir „áreksturinn“ á sýningunni Burnout 2010 og „droppið“ verður myndað á high speed video vélar að hætti Mythbusters.



Íslandsmeistaramótið í hjólafimi - vegleg verðlaun

Klukkan 14:00 verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslitin ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni. Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði.

Verðlaunin eru ekki af verri endanum

1. Verðlaun – 60.000 kr. Bensín úttekt frá Orkunni

2. Verðlaun – Hjálmur frá Suzuki umboðinu

3. Verðlaun – 20.000 kr. Gjafabréf frá IKEA

Stigahæsta kona – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Stigahæsti karl – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni

Hægt er að skrá sig til keppni með því að senda póst á 1831@sniglar.is eða á staðnum fyrir keppni. Skilyrði fyri þátttöku er að vera með mótorhjólapróf.


Sýning

Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða. Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.

Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssini. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.

Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.

Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í 1831@sniglar.is



Biker Ball

Eftir að hafa hjólað frá okkur mest allt vit í hópkeyrslunni um daginn þá ætlum við að skemmta frá okkur því viti sem eftir er að kvöldi 1. maí á Players Kópavogi. Rokk/blues bandið Síðasti Séns leikur fyrir dönsum og djammi með DJ Mikkólf sér til halds og trausts.

Miðaverði hefur verið stillt í hóf og inn kostar litlar 1500 krónur íslenskar. Ekki þýðir að borga með erlendum gjaldeyri, við komust hvort eð er ekkert út til að eyða honum. Bandið samanstendur af þaulreyndum djammhundum sem marga fjöruna hafa sopið og DJ Mikkólfur hefur sopið þær tvær eða þrjár, enda fjöru áhuga maður mikill.

Rokk, Ról og Mótorhjól.

Support 182144118
Animal Offline
#4 Posted : 27. apríl 2010 23:12:47(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar
Joined: 11.8.2007(UTC)
Posts: 692
Location: Að taka niður Örbylgjuloftnetið

Hvernig er stemmingin fyrir þessu?.
Og sjá! ég er vitnisburður...............

"THE REAL CHICKENSTRIPE IS IN YOUR UNDIES"

Der taufel bist mit seiner GroBmutter los!.
Mr.Flanker Offline
#5 Posted : 28. apríl 2010 00:02:15(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 28.4.2007(UTC)
Posts: 1.222
Location: Þar sem stuðið er

Bara góð held ég, við hjónakornin mætum og allir sem við höfum talað við eru bara hressir fyrir þessu. Vonum bara eftir betra veðri en í fyrra!! :-D
Hook1 Offline
#6 Posted : 30. apríl 2010 22:06:46(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 31.7.2008(UTC)
Posts: 221
Location: RVK

Er ekki spurning um að taka fjöldareikspól fyrir framan héraðsdóm ?
Þótt ekki væri nema til að mótmæla rangri forgangsröðun í lögsóknum eftir hrun.
Ég er ekki alveg að fíla það að vera alltaf að missa af einhverju.
Eftir að ég fékk radarvara er ég alltaf að missa af punktum og sektarboðum....
Ekki Þitt kerfi
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook