Haffman wrote: Samkvæmt öllu eru svona grindur metnar ónýtar. Það er langsótt að segja að grindin brotni eða eitthvað svoleiðis en hun er veik á þeim stað sem brotið eða dældin er, í flestum tilfefflum brotna svona grindur í ,,næsta" falli sem hjólið tekur.
Ég mundi persónulega ekki hjóla á svona grind nema þá ef hjólið væri notuð sem rotta á RC brautinni eða eitthvað svoleiðis.
mér finnst þetta vera meira persónulegt mat, en faglegt! (ekki ílla meint Haffi ;) )
ég mundi spyrja menn eins og Svan, hann er skráður hérna á spjallinu undir Phantom
Mig minnir að hann sé málmsmiður og búinn að mennta sig í verkfræði eða tæknifræði í kringum málma og vinnur hjá Álverinu í straumsvík
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins