Nú stendur til að setja 230.milljónir í framkvæmdir við að reisa nýjann Golfvöll sem kemur ekki til með að bjarga einu einsta mannslífi.
HVERSVEGNA Í ÓSKÖPUNUM er ekki hægt að fá fjármagn til að reisa Akstursbraut sem myndi pottþétt bjarga nokkrum mannslífum ?
Þar sem nýliðum í umferð yrðu kenndur hálkuakstur etc. í örugguumhverfi ásamt því að meðlimir akstursíþróttafélaga fengju afnot af brautinni gegn vægu gjaldi.
Einnig væri hægt að reisa alvöru braut ef menn væru stórhuga og næðu að uppfylla F1 eða MotorGp staðla þannig að hægt væri að fá þessar stóru keppnir til Íslands. (Hverjar ætli bara gjaldeyristekjur af þeim sem koma til að sjá þessar keppnir væru).
Allaveganna er það nokkuð ljóst að mjög lítill peningur kemur til með að koma í kassan af þessum 9holu golfvelli í formi gjaldeyris sem á að reisa fyrir þessar 230.000.000.
Ég er ekki alveg að fíla það að vera alltaf að missa af einhverju.
Eftir að ég fékk radarvara er ég alltaf að missa af punktum og sektarboðum....
Ekki Þitt kerfi