Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

Rúntur austur fyrir hól.
emmbene Offline
#1 Posted : 22. mars 2010 23:35:11(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 2.8.2009(UTC)
Posts: 61

Ok úr bænum kl 11. Eyrnatapparnir settir í við litlu kaffistofuna og brennt af stað, allt í lagi færi yfir. Smá bras við Ingólfsfjallið voða mikill vindur.

Stoppað á Selfossi í kaffi sem kostaði 100 kall. Næsta stopp var í Landvegamótum og þar kostaði kaffið 200 kall? Hmm.

Þarna var tekin ákvörðun um að halda undan til baka vegna mikils blásturs sem ég sá nú ekki en hafði einkennileg áhrif á akstur mótorhjóls.(það sversta sem ég hef reynt) OK rúntað til baka þá með þetta ósýnilega á hægri hlið, Swakasaki sveltur þá á lofti og ekkert annað að gera en að bæta við ferð þannig að hann svelgi það súrefni sem þarf til bruna, á ofsahraða um sveitir Sunnanmanna birtist blettur á ratsjá eftirlitsmanna sem vakna upp af værum vetrar draumi og löggæslumenn tala sín á milli um einkennilegan hlut á ferð um þeirra sveitir, ekki hafi tekist að taka myndir af þessu fyrirbæri eða góð lýsing hafi gefist,en eftirför og contakt er fyrirhöguð þrátt fyrir það.

Er lagður út mikill leiðangur til að hafa hendur þessu fyrirbæri sem þeysir um þeirra sveitir en þegar síðast fréttist var það ólíklegt vegna þess að (hluturinn) hvarf sjónum margoft. Eftirförinni var samt haldið og við Rauðavatn var stöðvað bifhjól sem kanski var á ferð um Suðursveitir. Ökumaður þess bifhjóls sver af sé sakir um ofsaakstur og önnur ólæti. Hann er enn í gæsluvarðhaldi vegna meints brots og viðbótardómur er fyrirliggjandi vegna næstu brota.

Kv Emmi.
Sponsor
Xodus ehf
disso Offline
#2 Posted : 24. mars 2010 10:27:27(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar
Joined: 21.1.2007(UTC)
Posts: 678
Man
Location: kópavogi sími 866-0400

Hann er enn í gæsluvarðhaldi vegna meints brots og viðbótardómur er fyrirliggjandi vegna næstu brota.
what??? ennþá í haldi???
emmbene Offline
#3 Posted : 24. mars 2010 22:04:37(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 2.8.2009(UTC)
Posts: 61

Nei nei ýkti bara svolítið.......Whistle sögurnar eru stundum betri svoleis.
Dodds Offline
#4 Posted : 24. mars 2010 22:37:19(UTC)

Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.2.2007(UTC)
Posts: 16
Location: Akureyri

og við vitum nú öll að ekki skal sannleikinn standa í vegi fyrir góðri sögu Whistle hehe
hjóla-golf er málið, prófið suzuki-járnið
emmbene Offline
#5 Posted : 25. mars 2010 20:12:26(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 2.8.2009(UTC)
Posts: 61

Vissulega, en þeir biðu nú samt eftir mér Austan við Selfoss í dag og fannst áhugavert hvað þetta tiltekna faratæki var fljótt í förum frá Hvolsvelli? Mætti nú einmitt tukta stuttu áður Vestan við Hvolsvöll sem var einn í Santa Feyinum sínum og í símanumWink Engar afleyðingar samt sem áður bara smá spjall, en þeir fylgjast með strákarnir.Löggan
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook