Kidlingur wrote:Ég er að pæla að skipta út 2 pc gallanum og fá mér góðan 1 pc galla. Ég er búinn að skoða það sem er til hérna heima og er helst að pæla í Berik eða Arlen vs Dainese.
Þetta eru allt góð merki en Dainese er töluvert dýrari en t.d. Berik en spurnig hvort þeir séu það mikið betri eins og verðmunurinn gefur til kynna?
Dainese er klassa gallar en einn er gallinn við þá. Ef þú ert hávaxinn þeas yfir 183 cm með langar lappir þá er sniðið á þeim frekar leiðinlegt, fyrir stóramenn eru þeir klofstuttir en ef þú finnur galla sem passar vel á þig þá eru þetta eðal gallar.
Berik er aftur á móti galli sem hentar storum mönnum betur. Sniðið á þeim er nú bara þannig. Þekki Berik sennililega betur en Dainese þar sem ég kom því inn að þeir yrðu fluttir inn til landsins.
Berik er topp merki og margir GP og superbike ökumenn aka í Berik.
Annað ódýrar merki sem er mjög gott og margir þekkja ekki RST. Nánast sama og Berik nema ódýrari og ekkert síðri. Ég er með tvo þriggja ára svoleiðis galla og það sér varla á þeim og er annar búinn að krassa oftar en einu sinni.