Rank: Ruddi
Groups: Ruddar, Stjórnandi Joined: 24.11.2006(UTC) Posts: 4.292  Location: Hafnir City Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
|
hérna er umræða um þetta mál http://ruddar.spjallbord...l246gfr230240ingur.aspx
Dómurinn wrote: Oddur Árnason yfirlögregluþjónn kom fyrir dóminn og útskýrði skjöl 10-1 og 10-2 í skjalaskrá lögreglu sem mælingar Guðmundar B. Böðvarssonar voru byggðar á. Kvað hann á myndinni koma fram þann tíma sem tók bæði ökutækin að fara ákveðna vegalengd. Hraðinn á ökutækjunum var samkvæmt því mældur á þeirri vegalengd. Kvað hann annars vegar mælingar fara fram með radar og hins vegar væri meðalhraði mældur út samkvæmt tímasetningu og vegalengd og væru báðar aðferðir viðurkenndar af dómstólum. Útskýrði hann að staðsetning hjólanna hefði verið fundin út með upptökumyndum úr myndavélinni og GPS-tæki, þannig að skekkjumörk gætu verið um sentimetri. Farið hefði verið út í þessa útreikninga til að finna út hraðann á síðara hjólinu en meðalhraði þess hefði verið á 350 metra kafla 144,9 km/klst. Aðspurður um framkvæmdina við að finna út upphafs- og lokapunkt, kvað hann mælistikur hafa verið notaðar til að finna nákvæma staðsetningu út frá myndum úr Eye-witness búnaðinum. Þá kvað hann aðspurður radarinn starfa sjálfstætt, óháðan myndavélinni, hann sendi mælitölur á myndskjáinn, óháð því hvað myndavélin væri að taka upp.
Guðmundur B. Böðvarsson, kt. 000000-0000, Háholti 2b, Laugarvatni, kom fyrir dóminn og kvaðst hafa unnið að útreikningum fyrir lögregluna í þessu máli. Notaðist hann við GPS-landmælingatæki Trimble R8, 5800, og væru skekkjumörkin einn sentimetri í láréttu plani og tveir í lóðréttu plani. Kvað hann punkta út frá vídeómynd frá lögreglu hafa verið mælda út á veginum og þeir síðan settir inn á loftmynd í sama hnitakerfi og mælingarnar og þannig væri vegalengdin fundin út. Kvað hann ýmis kennileiti hafa verið notuð, s.s. runna og vegstikur sem kæmu fram á upptöku lögreglunnar.
Support 182144118
|