Ef hjólið gengur á innsoginu en ekki á gjöf eða án innsogs þá myndi ég byrja á að athuga blöndungana. Það eru allar líkur á því að það sé drulla í þeim, eða að það komi bara ekki nóg bensin úr tanknum.
En er það rétt ágiskun hjá mér að hjólið sé búið að standa lengi?
Eða gerðist þetta hægt og bítandi?
Bensínkraninn á tanknum hefur 3 stillingar og ENGINN þeirra er lokuð, On, res, og prime, prime er alltaf opinn en hinar tvær opnast ekki nema hjólið sé komið í gang (þú ættir að sjá lögn frá lokanum að einum af soggreinunum frá blöndung að vél, þaðan kemur sogið sem opnar lokann).
Ef bensínið er gamalt eða að blöndungarnir ná ekki að fylla sig þá getur þetta komið fram eins og þú ert að lýsa vandamálinu.
Guð gefi mér elliglöp til að gleyma þeim sem ég þoldi ekki hvort sem er,
Þá gæfu að rekast á þá sem mér líkaði við,
Og sjón til að þekkja muninn
A.K.A. Addi_Sig
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR