Varðandi þetta dynobekkja mál hans Vegalauss. Það væri gaman að fá á hreint hver ber ábyrgð í svona málum.
A. Það er komið með hjólið í tjúningu. Þá virkar það.
B. 20 bensínlítrum seinna er annar tveggja sílender-stimpill-hedd orðið ónýtt, brotinn stimpilhringur hinu megin en annars minni skemmdir.
Skemmdin er næstum örugglega vegna þess að vélin hefur gengið í einhvern tíma með allt of veika bensínblöndu. Brotni stimpilhringurinn hinu megin bendir til forsprenginga og láta. Hvor tveggja finnst mér vera á ábyrð þess sem var að stilla hjólið.
Vegalaus var hins vegar búinn að breyta hjólinu umtalsvert, það hefði ekki farið í stillingu ef hann hefði ekki verið búinn að því svo hann ber einhverja ábyrgð. Hlutirnir sem Vegalaus var búinn að eiga við, voru ekki þeir hlutir sem fóru.
Hvað með vinnureglur á dynobekkjum? Ætti ekki að byrja á því að skoða ástand vélar áður en hún er tekin í tjúningu?
Mér sýnist á lestri þessa þráðar að Vegalaus hafi ekki gert neinar kröfur um bætur en hafi sagt að honum myndi þykja gott að fá smá bætur.
Á hinn bóginn.
Samkvæmt því sem ég hef heyrt er Valur með reyndari mönnum á sviði mótortjúninga, þó hans sérsvið sé stórar bílvélar og mest af hans þekkingu sé á vélum með blöndung, ekki mótorhjólavélar með innspýtingu. Það er ítrekað búið að segja mér að þetta sé ekki það sama en mikið af "stórvélaviskunni" er hægt að yfirfæra. Það gerist sama í báðum vélum ef blandan er of veik.
Valur segist hafa gert þetta sem föndur eftir vinnu þegar vel stæði á. Hann segir að hann hafi gert Vegalausum grein fyrir því að hann myndi vinna þetta verk án ábyrgðar. Hann segir líka að Vegalaus skuldi honum pening fyrir 20 lítrum af bensíni og 30 klst. vinnu.
Ef ég ætti dýran útbúnað eins og dynobekkurinn er og ég fyndi það út að starfsmaðurinn sem ég hefði í vinnu við að sjá um þennan búnað væri í því á kvöldin að nota minn búnað í verkefni fyrir óskylda aðila, verkefni sem hann að auki væri að rukka fyrir. Þá yrði viðkomandi starfsmaður, ef hann gæti ekki gefið
mjög góðar skýringar, fyrrverandi starfsmaður um leið og ég næði tali af honum.
Kveðja, Helgi Már.
Gamall bifhjólaáhugamaður.
Sá er vinur er til vamms segir.