Fór með gallann minn sem var orðinn mjög þurr og sjúskaður til DR. Leður sem er í sama húsi og harðviðarval á Krókhálsi. Hann heillitaði gallann og saumaði upp saumsprettur og gallinn er eins og nýr.
Þetta er hrikalega fínn náungi sem skilaði sinni vinnu á mettíma, fyrir fínan pening.
Hann er með verkstæði í sama húsi og Harðviðarval en það er gengið inn að aftanverðu og fyrirtækið heitir Toms.Svo er hann líka með leðurnæringu, liti, feiti og þh. til sölu ef menn vilja gera eitthvað sjálfir.