Sæl!
Ég er búinn að vera að fylgjast með hér á borðinu lengi, var m.a. á stofnfundi AÍH RR-deildarinnar.
Ég var loksins að kaupa mér hjól í fyrradag, hjólaði helling í gær. Ef ég mætti einhverjum og veifaði ekki biðst ég afsökunar, mjög upptekinn við að halda mér á hjólinu eins og er! Hvernig er annars best að veifa, svo ég skjóti því hér inn?
Allavegana. Hjólið sem varð fyrir valinu er 2003 árgerð af Honda CBR 600rr, gult að lit. Ég er ekkert lítið ánægður með að vera loks kominn á hjól, þannig að tíminn hefur meira farið í að hjóla en að taka myndir, en ég bæti þeim inn á næstu dögum! læt fljóta með eina af mér á hjólinu samt...
rusticolus attached the following image(s):
Jónatan Jónsson
Honda CBR 600rr