AÍH og deildirnar innan félagsins fjármagna þetta, þetta eru æfingagjöldin ykkar þarna í verki! :D Að sjálfsögðu eru öll framlög til verkefnisins vel þegin!
Við stefnum á að fjölmenna uppá braut á miðvikudagskvöldið til að taka lokafrágang. Ég hvet því alla til að mæta og taka vini sína með, það vantar alltaf fólk á skóflurnar og hrífurnar. Mætið því með alla vini ykkar, skóflurnar, hrífurnar, hjólbörurnar og verkfærin og takið til hendinni með okkur. Með ykkar hjálp opnar brautin fyrr og við getum farið að taka á því á nýju brautinni!!!! :D